Fréttir

Guðni Ingimundarson heiðursborgari Garðs
Guðni Ingimundarson. VF-mynd: Hilmar Bragi
Fimmtudagur 6. mars 2014 kl. 14:33

Guðni Ingimundarson heiðursborgari Garðs

Þann 3. mars 2004 var fyrsti fundur bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Garðs.  Í tilefni þess að liðin eru 10 ár frá fyrsta fundi bæjarstjórnar samþykkti bæjarstjórn á fundi sínum þann 5. mars 2014 að útnefna Guðna Ingimundarson heiðursborgara Sveitarfélagsins Garðs.  Tillaga þess efnis var lögð fram af öllum bæjarfulltrúum í bæjarstjórn.

Guðni Ingimundarson er kjörinn heiðursborgari Sveitarfélagsins Garðs fyrir frumkvöðlastarf hans við varðveislu menningarverðmæta sem tengjast atvinnusögunni, sem og fyrir störf hans í þágu byggða-og atvinnumála.

Guðni var alla sína starfsævi vörubílstjóri.  Árið 1954 var hann fenginn til að leggja vatnsveitu í Garði, til þess að vinna verkið festi hann kaup á GMC hertrukk með bómu að framan.  Guðni ætlaði sér að nota trukkinn í þetta eina verkefni, en það fór svo að trukkurinn varð hans aðal atvinnutæki í um 50 ár.  Guðni og trukkurinn leystu mörg verkefni í Garði og fóru auk þess víða um Suðurnes til að vinna að margvíslegum verkefnum.  Fyrir vikið er Guðni vel þekktur meðal Suðurnesjamanna og gjarnan er talað um Guðna og trukkinn samtímis.

Guðni hefur gegnum tíðina safnað á annað hundrað bátavéla, gert þær upp sem nýjar og gangfærar.  Elsta vélin er frá því um 1920.  Þegar Byggðasafnið á Garðskaga var vígt þann 2. Júlí 2005 afhenti Guðni safninu að gjöf og til varðveislu 60 gangfærar bátavélar, auk þess sem hann gaf safninu GMC trukkinn sinn fræga.  Auk þessara véla á Guðni um 40 uppgerðar og gangfærar vélar í skúrnum hjá sér.  Guðni er því sannur frumkvöðull við varðveislu menningarverðmæta sem tengjast atvinnusögunni og er vélasafnið sem hann hefur safnað og gert upp einstakt, ekki aðeins á Íslandi heldur þótt víðar væri leitað.

Guðni fæddist að Garðstöðum í Garði þann 30. desember 1923 og varð því 90 ára þann 30. desember 2013.  Eiginkona hans er Ágústa Sigurðardóttir frá Ásgarði á Miðnesi, börn þeirra eru Sigurjóna, Ingimundur og Árni, sem öll eru búsett í Garði.

Bæjarstjórn og bæjarstjóri óska Guðna Ingimundarsyni og fjölskyldu hans innilega til hamingju með útnefningu hans sem heiðursborgara Sveitarfélagsins Garðs.  Guðni er sannarlega vel að því kominn, enda hefur hann alla tíð lagt sig fram um að gera Garðinum allt það besta sem hann hefur getað og haldið sögu Garðsins hátt á lofti.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024