Fréttir

Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltu á Grindavíkurvegi
Mikil hálka var á Grindavíkurvegi þegar slysið átti sér stað.
Mánudagur 13. nóvember 2017 kl. 14:49

Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltu á Grindavíkurvegi

Þrír voru fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu á Grindavíkurvegi fyrr í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum voru tveir þeirra slösuðu fluttir á Landspítalann í Fossvogi en sá þriðji á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar. Enginn er þó talinn hafa slasast alvarlega.

Mikil hálka var á veginum þegar bílveltan átti sér stað og er bifreiðin illa farin.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024