Fréttir

Bjóða 205 starfsmönnum nýjan ráðningarsamning
Mánudagur 1. apríl 2019 kl. 14:46

Bjóða 205 starfsmönnum nýjan ráðningarsamning

– Flugfélög skoða að fjölga flugferðum til Keflavíkurflugvallar

Flugfélög sem eru í viðskiptum við Airport Associa­tes á Keflavíkurflugvelli hafa sýnt því áhuga að fjölga ferðum til Íslands. Þetta kemur fram í samtali við Sigþór Krist­inn Skúla­son, for­stjóri fé­lags­ins, á mbl.is í dag. Nú er verið vinna við að bjóða aft­ur 205 starfs­mönn­um Airport Associa­tes, af þeim 315 sem sagt var upp í síðustu viku, nýj­an ráðning­ar­samn­ing.
 
Hjá Airport Associa­tes starfa í dag um 400 manns. „Það er gjör­breytt­ur vinnu­tími og vakt­ir og í því felst að marg­ir fá boð um minna starfs­hlut­fall,“ seg­ir Sigþór á mbl.is og bæt­ir við að með því að minnka starfs­hlut­fall gef­ist þeim kost­ur á að bjóða fleir­um að halda starfi sínu. „Með því vilj­um við minnka höggið,“ seg­ir Sigþór.
 
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024