Fréttir

20 sagt upp hjá IGS og líklega 20 til viðbótar
Frá starfsemi IGS í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Þriðjudagur 26. ágúst 2014 kl. 21:17

20 sagt upp hjá IGS og líklega 20 til viðbótar

Komust ekki áfram í útboði um rekstur veitinga og verslana í FLE.

Búið er að segja upp helmingi starfsfólks í veitingarekstri IGS í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Fyrir liggur að fleiri missa vinnuna. Greint er frá þessu á vefsíðu Viðskiptablaðins. 

„Við vonum að sá sem fær reksturinn muni horfa til okkar starfsfólks og ráði það í vinnu,“ segir Gunnar S. Olsen, framkvæmdastjóri IGS, dótturfyrirtækis Icelandair Group í samtali við Viðskiptablaðið. Fyrirtækið annast flugvallaþjónustu við flugfélög og farþega á Keflavíkurflugvelli, rekur flugeldhús og tollvörugeymslur, fraktmiðstöð og veitingastaði í Leifsstöð.
 
Eins og fram kom í umfjöllun VB.is fyrr í dag tók IGS þátt í útboði um rekstur veitinga- og verslana í flugstöðinni. Ljóst er hins vegar að fyrirtækið hefur ekki komist áfram í því þrátt fyrir að hafa séð um veitingareksturinn í nokkur ár. Af þeim sökum hefur IGS sagt upp sem nemur 20 stöðugildum og þarf líklega að segja upp 20 til viðbótar í flugstöðinni. 
 
Ekki liggur enn fyrir hver fær reksturinn í stað IGS. Samningaviðræður við þá sem báru af í mati umsókna í forvalinu eru framundan. Samningstími núverandi rekstraraðila rennur út í árslok og gert er ráð fyrir að endurnýjað verslunarsvæði verði tekið í notkun í vor á næsta ári. 
 
Gunnar segir í samtali við VB.is að hann voni að sá sem fái reksturinn horfi til starfsfólks IGS sem missi vinnuna og ráði það til sín. „Okkur dreymir um að þeir nýti þessa reynslu og þekkingu sem er hjá fólkinu og að það fái áfram vinnu,“ segir hann.
 
Hjá IGS vinna um 800 manns yfir sumartímann en í kringum 500 yfir vetrartímann. Reksturinn í flugstöðinni er því lítill hluti af starfsemi IGS. 
 
Public deli
Public deli