Viðskipti

WOW air afhendir Landvernd 17,9 miljónir
Miðvikudagur 11. apríl 2018 kl. 13:24

WOW air afhendir Landvernd 17,9 miljónir

WOW air afhendir Landvernd afrakstur myntsöfnunar til styrktar Landverndar að upphæð 8.955.011 auk mótframlags WOW air 8.955.011. Samtals er því um að ræða 17.910.022 krónur sem renna til Landverndar. Við afhendinguna var einnig nýr samstarfssamningur til eins árs undirritaður. 
 
Eitt ár er liðið frá því að WOW air hóf myntsöfnun um borð í vélum sínum fyrir hönd farþega. Sérstakt umslag hefur verið í sætisvösum allra WOW air flugvéla og hafa farþegar verið hvattir til þess að gefa afgangsmynt til Landverndar. 
 
„Við getum verið mjög stolt af árangri þessarar söfnunar og það er frábært að sjá hvað farþegar okkar hafa tekið henni vel. Málefnið er göfugt og við munum halda áfram að styðja við uppbyggingu og verndun íslenskrar náttúru“ segir Skúli Mogensen framkvæmdastjóri og eigandi WOW air.
 
Landvernd eru frjáls félagasamtök sem starfa að umhverfismálum og leggja áherslu á að taka virkan þátt í ákvarðanatöku, fræðslu og stefnumótun er varða íslenska náttúru og sjálfbæra nýtingu hennar.
 
„Við hjá Landvernd eru afskaplega ánægð og þakklát fyrir stuðning flugfarþega og mótframlag WOW air. Afraksturinn fór fram úr okkar björtustu vonum, en endurspeglar ef til vill hrifningu ferðamanna á náttúru landsins og þörfina að vernda hana. Þessi stuðningur skiptir samtökin miklu máli og verður nýttur í mikilvæg verkefni eins og t.d. stofnun hálendisþjóðgarðs, endurheimt birkiskóga og votlendis. Svo má nefna að á næsta ári eiga samtökin 50 ára afmæli og ætlum við að minnast þess með ýmsum viðburðum á afmælisárinu“ segir Lovísa Ásbjörnsdóttir starfandi formaður Landverndar.
 
Mynd frá afhendingu gjafarinnar er efst í fréttinni.
Aftari röð til vinstri: Margrét Auðunsdóttir stjórnarkona í Landvernd, Lovísa Ásbjörnsdóttir starfandi formaður Landverndar, Skúli Mogensen forstjóri WOW air, Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir starfsmaður Landverndar, Salome Hallfreðsdóttir framkvæmdastjóri Landverndar og Guðmundur Björnsson stjórnarmaður í Landvernd.
Fremri röð frá vinstri: Hugrún Geirsdóttir stjórnarkona í Landvernd, Guðrún Vaka Helgadóttir ritstjóri WOW magazine, Bergljót Björk aðstoðarkona forstjóra WOW air, Margrét Hugadóttir starfsmaður Landverndar.
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024