Viðskipti

Stafræn framtíð og þjónusta
Arndís Thorarensen frá fyrirtækinu Parallel ráðgjöf mun segja frá þróuninni í stafrænni þjónustu.
Mánudagur 14. október 2019 kl. 09:39

Stafræn framtíð og þjónusta

Fræðslufundur í hádeginu á morgun

Arndís Thorarensen frá fyrirtækinu Parallel ráðgjöf mun segja frá þróuninni í stafrænni þjónustu á fyrsta fræðslufundi Heklunnar og Kaupfélags Suðurnesja sem haldinn verður að Krossmóa 4, 5. Hæð á morgun, þriðjudaginn 15. Október l. 12:00 – 12:45.

Fjallað verður um mikilvægi þess að tileinka sér nýsköpun í þjónustuframboði og hvernig hægt er að breyta skipulagi til að framleiða stafræna ferla sem mæta væntingum neytenda. Ljóst er að hraðar tækibreytingar í viðskiptum krefjast nýrrar hugsunar á þjónustu og framkvæmd verkefna hjá fyrirtækjum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Paralell ráðgjöf sérhæfir sig í greiningu og stjórnun stafrænna verkefna, innleiðingu nýrra verkferla og stefnumótun fyrir stafræna umbreytingu.