Viðskipti

Plastlausar ávaxta- og grænmetisdeildir
Föstudagur 17. maí 2019 kl. 09:15

Plastlausar ávaxta- og grænmetisdeildir

- í verslunum Nettó fyrir lok árs 2019

Nettó hefur sett sér það að markmiði að vera með plastlausar ávaxta- og grænmetisdeildir í verslunum fyrir lok árs 2019. Nú þegar er miklu hlutfalli af lífrænu grænmeti og ávöxtum pakkað í umhverfisvænar umbúðir og er verkefnið unnið í samstarfi við birgja.
 
Í öllum Nettó verslunum hefur í nokkur ár verið í notkun úðunarkerfi í ávaxta –og grænmetistorgi sem lengir líftíma grænmetis og ávaxta um 30-40%. Í upphafi árs voru síðan teknir í notkun og seldir fjölnotapokar fyrir ávexti og grænmeti í öllum verslunum Nettó sem mælst hafa vel fyrir hjá viðskiptavinum.
 
Nettó hefur undanfarin ár lagt mikla áherslu á að hafa jákvæð áhrif á umhverfið og verið leiðandi í umhverfismálum matvöruverslana hér á landi. 
 
,,Við viljum sífellt vera að bæta okkur út frá umhverfislegu sjónarmiði og haga verklagi okkar í takti við það“, segir Gunnar Egill Sigurðsson, framkvæmdastjóri verslunarsviðs Samkaupa sem á og rekur m.a. Nettó verslanirnar.
 
Önnur verkefni sem Nettó hefur ráðist í út frá umhverfislegu sjónarmiði í tengslum við rekstur verslana er t.d. verkefni á borð við ,,Minni sóun“ sem felst í að gefa stighækkandi afslátt af vörum sem nálgast síðasta söludag, lok á allar frystikistur sem skilar sér í 40% orkusparnaði á ársgrundvelli, strandhreinsanir, öflugt söluátak í tengslum við fjölnota burðarpoka, diskósúpan og fleira.
 
Fyrir tæpum tveimur árum opnaði Nettó fyrstu lágvöruverðs vefverslunina á Íslandi og hefur reglulega verið boðið upp á fría fjölnotapoka í tengslum við heimsendingar og sóttar pantanir. Þess má geta að rafbílar eru eingöngu notaðir við útkeyrslur í tengslum við sendingar úr vefverslun. 
 
„Árið 2017 settum við okkur markmið að minnka plastpoka um 1 milljón eða 30% fyrir árslok 2019. Frá árinu 2010 erum við að sjá samdrátt uppá 37% og núna erum við að horfa á 25% samdrátt mánuð fyrir mánuð þannig að við erum fullviss að ná þessu markmiði á þessu ári. Auk þessa erum við að vinna markvisst í að finna umhverfisvænar lausnir, ss. plastlausar lausnir í einnota vörur fyrir útileiguna í sumar, munum hætta sölu á plaströrum og færum okkur yfir í niðurbrjótanleg rör og fleira í þessa átt. Þessi frábæri árangur sýnir að viðskiptavinir Nettó eru tilbúnir í þessa vegferð með okkur og er umhugað um umhverfið. Við tvíeflumst við að finna þann frábæra meðbyr,“ segir Gunnar Egill.

 
Gunnar Egill Sigurðsson, framkvæmdastjóri verslunarsviðs Samkaupa.
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024