Pistlar

Mokveiði í mars
Gísli Reynisson
Gísli Reynisson skrifar
föstudaginn 1. apríl 2022 kl. 06:06

Mokveiði í mars

Þar sem ég sit núna í rútunni og horfi útum gluggan sést skrifað þar á hús, Húsafell Activity Center.  Já, er sem sagt staddur í Húsafelli að skrifa þennan pistil. Ekki er nú hægt að segja að hægt sé að tengja Húsafell við útgerð eða fiskvinnslu frá Suðurnesjunum og  því þurfum við ekkert að eiga meiri orð um það.

Aftur á móti er mars mánuðurinn að verða búinn og það er búið að vera mokveiði hjá bátunum frá Suðurnesjum og má segja að hópurinn hafi færst svo til til því í byrjun mars var svo til mest allur línuflotinn að veiðum utan við Sandgerði en um miðjan mars færði hann sig útaf Grindavík á Selvogsbankann sem eru mjög þekkt fiskimið.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Reyndar er mjög mikill floti af togurum, bæði 29 metra togurum og stærri skipum búnir að vera á veiðum þarna utan Grindavíkur.  Aftur á móti hefur enginn netabátur verið þar að veiðum, en það gæti breyst því Þórsnes SH og Kap II VE voru komnir þarna þegar þessi pistill var skrifaður. Þó svo að mikill fjöldi hafi verið á veiðum utan við Grindavík þá er það bara brotabrot af þeim fjölda sem var á veiðum þarna fyrir um 30 til 40 árum síðan. Þá var mikill floti bæði í Þorlákshöfn og Grindavík á netaveiðum. Í mars árið 1983 var til að mynda 91 bátur á netum frá Þorlákshöfn og Grindavík og af þeim voru um 55 frá Grindavík á netum. Þetta er all svakalegur fjöldi af bátum og magnið af netum sem voru í sjó. Ef við gefum okkur að hver bátur hafi verið með 6 trossur og hver trossa sé 15 neta þá eru þetta samtals um 8200 net í sjó á dag þegar allir þessir bátar voru á sjó. Ansi mikill munur á 39 árum, úr 91 netabát og yfir í engann. Þeir netabátar  sem núna eru á veiðum frá Suðurnesjunum hafa allir verið með netin sín í Faxaflóanum og reyndar hafa þrír þeirra verið með netin svo til rétt utan við Vatnsnes og því ansi stutt sigling fyrir þá báta þar sem þeir hafa verið að landa í Keflavík.

Bergvík GK er með 58 tonn í 18 róðrum og mest 6,4 tonn í einni löndun. Sunna Líf GK 7,3 tonn í 9 og Halldór Afi GK 44 tonn í 17, en þessir þrír bátar hafa verið þarna utan við Vatnsnes.

Hinir þrír bátanna hafa verið lengra inn í Faxaflóanum og eru þeir allir komnir með yfir 100 tonna afla núna í mars. Maron GK er með 101 tonn í 15 róðrum og mest 16 tonn. Grímsnes GK 189 tonn í 20 róðrum og mest 20 tonn og Erling KE 289 tonn í 15 róðrum og mest 33 tonn. Að ofan var minnst á mikinn fjölda af togbátum sem hafa verið við veiðar á miðunum út frá Grindavík, þeir voru reyndar líka á veiðum á miðunum út af Sandgerði, en það virðst vera mjög mikið af fiski út af báðum stöðunum og mokveiði á báðum svæðum.  

Ef við lítum aðeins á togskipin þá er Sturla GK með 535 tonn í 8 löndunum og mest 73 tonn. Vörður ÞH er með 393 tonn í 5 róðrum og mest 95 tonn. Áskell ÞH 365 tonn í 4, Jóhanna Gísladóttir GK 343 tonn í 5 löndunum og Pálína Þórunn GK 340 tonn í 5 túrum og mest 72 tonn.

Hérna að ofan eru nefnd fimm togskip. Vörður ÞH og Áskell ÞH eru systurskip bæði smíðuð í Noregi og komu 7 togarar eins og þau til Íslands á árunum 2018 til 2019. Þetta voru: Vörður ÞH og  Áskell ÞH sem Gjögur ehf. gerir út. Gjögur ehf. er frá Grenivík en er með fiskvinnslu líka í Grindavík og á sér langa sögu  í útgerð og vinnslu í Grindavík og Grenivík, Bergey VE og Vestmannaey VE sem Bergur- Huginn í Vestmannaeyjum gerir út, Þinganes SF og Steinunn SF sem Skinney Þinganes á Hornafirði gerir út og síðan Harðbakur EA sem Útgerðarfélag Akureyrar gerir út.
Sturla GK og Pálína Þórunn GK eru svipaðir togarar.  Sturla GK var smíðuð 2007 í Póllandi. Pálína Þórunn GK var smíðuð í Kína árið 2001.  Báðir eru svipað langir, nema að Sturla GK er metra breiðari en Pálína Þórunn GK. Aftur á móti þá er vélin í Pálínu stærri, hún er 952 hestöfl enn 700 hestöfl í Sturlu GK.