Pistlar

Aflaannáll 2019
Föstudagur 3. janúar 2020 kl. 21:54

Aflaannáll 2019

Í þessum fyrsta pistli Aflafrétta á nýju ári er vel við hæfi að renna aðeins yfir heildarafla hinna og þessara báta frá Suðurnesjum á árinu 2019.

Addi Afi GK var með 283 tonn á árinu í 78 róðrum, inni í þeirri tölu eri 88 tonn af makríl. Alla GK 15,9 tonn í 29 róðrum á færum. Andey GK 24 tonn í átta og inni í þeirri tölu eru 22 tonn af makríl. Mikið aflahrun varð á Andey GK því árið 2018 þá var báturinn með yfir 500 tonna afla. Bára KE 131 15,7 tonn í 37 róðrum á færum, Benni Sæm GK 1520 tonn í 141 róðri á dragnót, Berglín GK 3533 tonn í 51 róðri, Bergur Vigfús GK 176 tonn í 43. Beta GK átti gott ár, 602 tonn í 128 róðrum, Brynjar KE 23 tonn í 27 róðri, Daðey GK 1000 tonn í 175 róðrum, Dímon GK 26 tonn í 37 á færum. Dóri GK 718 tonn í 126 róðrum, Dóri í Vörum GK 18 tonn í 32 róðrum. Dúddi Gísla GK 594 tonn í 105 róðrum, Erling KE 1478 tonn í 100 róðrum á net, Fagravík GK 23 tonn í 39, Fjölnir GK 3510 tonn í 41 á línu, Geirfugl GK 440 tonn í 113 róðrum, Gísli Súrsson GK 1268 tonn í 158 róðrum, Grímsnes GK 1200 tonn í 155 róðrum á netum. Guðbjörg GK 673 tonn í 105 róðrum en hann hætti róðrum eftir vertíðina. Guðrún Petrína GK 247 tonn í 65 róðrum og inni í þeirri tölu er 100 tonn af makríl, Gulltoppur GK 144 tonn í 39 og inni í þeirru tölu er 60 tonn af makríl. Halldór Afi GK 400 tonn í 193 róðrum. Hólmsteinn GK 20 15,5 tonn í 30 róðrum, en þetta er smábátur sem rær á handfærum, Hraunsvík GK 336 tonn í 146 róðrum og má geta þess að þetta er eini netabáturinn sem er að róa frá Grindavík, Jóhanna Gísladóttir GK 3950 tonn í 39 róðrum, Líf GK 34 tonn í 47 róðrum. Margrét GK, nýi báturinn sem kom í staðinn fyrir Von GK, réri aðeins um haustið 2019 og náði að afla 250 tonn í 34 róðrum, Maron GK 891 tonn í 210 róðrum á netum, Ölli Krókur GK 28 tonn í 23 róðrum, Páll Jónsson GK 3735 tonn í 43 róðrum, Rán GK 14,6 tonn í fimm róðrum. Sæfari GK 44 tonn í 50 róðrum sem öllu var landað í Grindavík, Sævík GK 754 tonn í 102 róðrum, Sella GK 82 tonn í 69 róðrum, landað á Sandgerði og Suðureyri, Siggi Bjarna GK 1770 tonn í 143 róðrum, Sigurfari GK 1643 tonn í 127 róðrum. Skiptist aflinn þannig að gamli Sigurfari GK var með 1317 tonn og nýi Sigurfari GK restina, eða um 330 tonn. Sóley Sigurjóns GK 3732 tonn í 44 róðrum. Sóley Sigurjóns GK og Berglín GK voru um sumarið á rækjuveiðum við norðurland og af þessum afla var um 535 tonn sem veidd voru í rækjutroll, inni í þeirri tölu er rækja og fiskur. Stakasteinn GK 34 tonn í 51 róðri. Sturla GK 2928 tonn í 42 róðrum, Sunna Líf GK 232 tonn í 93 en það má geta þess að Sunna Líf GK byrjaði ekki að róa fyrr enn í mars því báturinn var í breytingum og fór ekki á sjói fyrr enn í mars. Valdimar GK 2807 tonn í 49 róðrum, Valþór GK 116 tonn í 28 á netum, Vésteinn GK 1417 tonn í 162 róðrum, Von GK 539 tonn í 85 róðrum. Von GK var síðan seldur til Suðureyrar og hóf þaðan róðra en báturinn kemur í staðinn fyrir Einar Guðnason ÍS sem strandaði skammt frá Suðureyri í nóvember og eyðilagðist. Þórdís GK 45 tonn í 50 róðrum, öllu landað í Grindavík.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Heildaraflinn sem landað var í höfnum á Suðurnesjum var um sex þúsund tonn í Keflavík og Njarðvík. Um þrettán þúsund tonn í Sandgerði og um 34 þúsund tonn í Grindavík. Í Gríndavík lönduðu frystitogar alls um sextán þúsund tonnum og ef sá afli er dreginn frá þá stendur eftir um átján þúsund tonn sem er þá bátaafli í Grindavík árið 2019.

Gísli Reynisson // [email protected]