Mannlíf

Tónleikaröð Ellýjar hleypt af stokkunum í kvöld
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
fimmtudaginn 29. febrúar 2024 kl. 12:45

Tónleikaröð Ellýjar hleypt af stokkunum í kvöld

Fyrstu tónleikarnir í Tónleikaröð Ellýjar verða haldnir þann 29. febrúar næstkomandi í Bergi, Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, og hefjast klukkan 20:00. Það er Tríó Alberts Sölva sem ríður á vaðið og mun leika vel valin djasslög auk frumsaminna tónsmíða Alberts en tríóið er samsett af saxófónleikaranum Alberti Sölva Óskarssyni, kontrabassaleikaranum Sigmari Þór Matthíassyni og trommuleikaranum Þorvaldi Halldórssyni.

Tónleikaröð Ellýjar er verkefni sem Tónlistarfélagið Ellý stendur fyrir en það er félagsskapur áhugafólks með það markmið að standa fyrir reglulegum tónlistaruppákomum í Reykjanesbæ með aðaláherslu á innlenda djasstónlist. Stefna félagsins er að halda átta tónleika (u.þ.b. eina tónleika í mánuði) á tímabilinu september til maí ár hvert. Tónleikarnir fara fram í Bergi í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og í Bókasafni Reykjanesbæjar. Viðburðirnir eru öllum opnir og enginn aðgangseyrir.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Nánari upplýsingar um tónleikana er að finna á vefnum jazz.is


Tónleikaröð Ellýjar er styrkt af Uppbyggingarsjóði Suðurnesja, Menningarsjóði Reykjanesbæjar og Reykjanesapóteki í samstarfi við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og Bókasafn Reykjanesbæjar.