Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Mannlíf

Sýnir skúlptúra í ævintýragarði í Garði
Helgi Valdimarsson, listamaður í Garði. VF-mynd/HilmarBragi
Fimmtudagur 10. mars 2016 kl. 06:00

Sýnir skúlptúra í ævintýragarði í Garði

- Viðtal við Helga Valdimarsson listamann

Við hús listamannsins Helga Valdimarssonar í Garði er sannkallaður ævintýragarður því þar er fjöldinn allur af skúlptúrum sem hann hefur skapað á undanförnum árum. Sýning í garðinum hans Helga verður einn af þeim fjölmörgu viðburðum sem í boði verða á Safnahelgi á Suðurnesjum um næstu helgi.

Helgi ólst upp í Sogamýrinni í Reykjavík. Hann er nú kominn á sjötugsaldur og hefur búið í Garðinum frá árinu 2008. Áður hafði hann búið í Vogum í 20 ár þar sem hann rak bílaréttinga- og málningarverkstæði. „Þegar ég var ungur drengur var Sogamýrin svipuð og Garðurinn er í dag. Þar var ró og næði. Það má því segja að ég sé kominn í hring. Nú er mikil bílaumferð í Reykjavík og allt mjög breytt. Mér finnst mjög gott að búa í Garði enda er náttúran afskaplega falleg hér. Ég horfi á norðurljósin úr bakgarðinum. Hér eru góðir nágrannar og maður getur hugsað og gert það sem mann langar til að gera á meðan maður hefur heilsu til.“ Helgi segir fólk flest vera þannig að þurfa að alltaf að vera að skapa eitthvað. „Það gefur manni voða mikið. Ég tala nú ekki um það ef maður getur selt eitthvað af verkunum líka. Það hefur gengið ágætlega hjá mér í gegnum árin,“ segir hann.
 
Verk til heiðurs formæðrum
Verk eftir Helga má sjá víða um Suðurnesin. Við Garðskagavita er verkið Kona sjómannsins. Helgi segir konur sem mótíf alltaf hafa verið honum hugleiknar enda séu þær betri helmingur mannkyns. „Konu sjómannsins gerði ég til heiðurs formæðrum okkar. Þær sáu um börn og bú og breiddu út saltfiskinn þegar eiginmenn þeirra réru á sjó. Í sumum tilfellum sáu þær líka um nokkrar kindur og jafnvel eina belju. Svo kom karlinn í land og þá var stumrað yfir honum, hann mataður og settur ofan í rúm. Svo rann Sjómannadagurinn upp og þá var hengd metalía á karlinn og eiginkoma hans átti ekki að vera fyrir. Ég gerði Konu sjómannsins til að minna á það hvað stendur á bak við hvern sjómann og gerir enn.“ 
 

Þegar keyrt er inn í Garð frá Reykjanesbæ stendur stytta af stóru jagúardýri á lóð við fyrsta húsið vinstra megin og er það eitt af verkum Helga. Þá er stytta af fjórum konum sem horfa í höfuðáttirnar við matvöruverslunina í Garði. Við bryggjuna í Garði er svo styttan Mangi sem er af Magnúsi Tóbíassyni frá Melstað á Akranesi. Hann bjó í Garði og réri manna lengst á opnum bát með árum og segli. Helgi segir Manga hafa verið mjög vel liðinn af fólki í Garði og að hann hafi farið á milli húsa og kíkt í kaffi. Þá eru einnig verk eftir Helga í Connecticut í Bandaríkjunum, í Safnasafninu á Svalbarðseyri og fyrir utan Kaffitár við Reykjanesbraut í Reykjanesbæ.

Bílamálun er list
Eins og áður sagði vann Helgi í mörg ár við bílamálun. Hann segir það fag snúast um list. „Vinur minn heitinn var líka bílamálari og við kölluðum okkur alltaf listamenn. Í þá daga var mikið verið að mála skreytingar á bíla.“ Skúlptúrar og bílamálun eru ekki einu listgreinarnar sem Helgi hefur fengist við því hann nam leiklist sem ungur maður. „Siggi Sigurjóns var ári á undan mér í skólanum og Diddú var með mér í bekk. Síðan lá leiðin í Þjóðleikhúsið þar sem ég lék í Sporvagninum Girnd og hafði mjög gaman af því.“ Síðar lék Helgi svo í bifvélavirkjann Hlyn kvikmyndinni Djöflaeyjunni. Dóttir hans lék einnig í myndinni og léku þau einmitt feðgin.
 
 
Af verkum Helga er augljóst að sjómennska er honum hugleikin enda þekkir hann hana af eigin raun því hann fékk sumarstarf á togara þegar hann var aðeins 13 ára gamall. Bróðir hans heitinn var þá 12 ára en laug til um aldur til að fá líka pláss. „Við höfðum nú gaman af þessu svona í aðra röndina en ég hefði ekki sent son minn 13 ára gamlan á sjó. „Þetta var síðutogari sem ég var á og þegar maður stóð frammi á dekki og var að gera að þá var ágjöfin yfir mann og þetta mjög erfitt líf.“
 
Á þeim tíma þegar Helgi var fyrst á sjó, árin 1963 til 1964 var erfitt að fá fólk til vinnu á togurum og segir Helgi útgerðir hafa beitt ýmsum vafasömum aðferðum til þess. „Þá fór einn frá útgerðinni á rúntinn í leigubíl með brennivínsflösku með sér og náði í karla sem voru á fylleríi. Þá lá togarinn á ytri höfninni og þeir voru teknir í dráttarbátinn og siglt með þá út í skip. Ef þeir voru með læti voru þeir rotaðir. Ég man eftir einum úr sveit sem hafði brugðið sér í bæinn að skemmta sér. Hann hrökk upp með andfælum í jakkafötunum alveg undrandi yfir því hvar hann væri og heimtaði að fá að fara í land. Það var ekki til umræðu og hann fékk að kaupa sér stakk og varð að klára túrinn. Mönnum var bara rænt og ég held að þetta yrði ekki leyft í dag. Svo voru rónar teknir líka á sjó. Þeir voru margir mjög duglegir þegar rann af þeim. Þetta var allt svolítið skrítið,“ segir Helgi um togaramennskuna á þeim tíma. 
 
Vinnur verkin fríhendis
Helgi býr við Urðarbraut 4 í Garði og er sýningin Ævintýragarðurinn þar. Áhugasamir geta einnig kíkt á hin verkin sem eru víða um Suðurnes. Í garðinum eru verk af ljóni í fullri stærð, Mikki mús og Hrafnaflóki svo nokkur séu nefnd. Helgi vinnur verkin úr steinsteypu, gerir allt fríhendis og notar aðeins íslenskt hráefni. Hann gerir verkin á bretti úti í skúr og tekur þau svo út á lyftara. Í hitt eð fyrra fékk garðurinn við heimili Helga verðlaun og í umsögninni kom fram að þetta væri mjög ævintýralegur garður og þaðan er titill sýningarinnar kominn. Allir eru velkomir á sýninguna sem stendur frá klukkan 13:00 til 17:00 á laugardag og sunnudag.
 
 
Verk Helga af Manga við bryggjuna í Garði. Mangi sótti manna lengst sjóinn á opnum bát með árum og segli. Hann var aldrei með sjóhatt, heldur pípuhatt. VF-mynd/HilmarBragi
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024