Mannlíf

Jói Pé og Króli í Hljómahöll
Miðvikudagur 23. júní 2021 kl. 11:46

Jói Pé og Króli í Hljómahöll

JóiPé og Króli verða með tónleika í Hljómahöll næstkomandi fimmtudaginn 24. Júní kl. 20:00.

JóiPé og Króli fara ásamt hljómsveit í ferðalag hringinn í kringum landið og spila á fjórtán tónleikum í jafnmörgum bæjarfélögum! Þeir félagar hafa þrátt fyrir ungan aldur gefið út fimm plötur á sex árum sem eru hver annarri ólíkari og kom sú nýjasta, Í miðjum kjarnorkuvetri, út á síðasta ári. Lög þeirra hafa slegið hvert metið á eftir öðru í hlustunum, þeir hlotið bæði Hlustenda- og Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir verk sín og svo mætti lengi telja. Drengirnir eru spenntir að mæta og spila öll sín bestu lög þar sem stuð og stemning verður í fyrirrúmi.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Hljómsveitina skipa:

Hljómsveitarstjórn/Gítar: Hafsteinn
Þráinsson

Bassi: Starri Snær Valdimarsson

Trommur: Ísak Emanúel Glad Róbertsson

Hljómborð/Trompet: Kári Hrafn Guðmundsson

Plötusnúður/Þeytisnælda/Munnharpa: Axel Magnús Kristjánsson

Hin unga og efnilega Gugusar sér um að hita upp.

Athugið:

Aðeins eru 100 sæti í boði á tónleikana. Gestir skulu bera andlitsgrímu.

Húsið opnar kl. 19:30 og tónleikar hefjast kl. 20:30.