Mannlíf

Gerir grín að sjálfum sér í sóttkvínni
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
laugardaginn 28. mars 2020 kl. 11:28

Gerir grín að sjálfum sér í sóttkvínni

Suðurnesjamaðurinn Bjarni Thor Kristinsson óperusöngvari er mörgum kunnur en hann hefur haldið sóttkvíardagbók á Facebook síðan hann slapp heim frá Ítalíu snemma í mars. Færslur Bjarna hafa fengið frábærar viðtökur og nú er svo komið að hann hefur náð sér í styrktaraðila í sóttkvínni en það er sokkafyrirtækið Socks2go. Fjórðungur af allri sölu á netsíðu fyrirtækisins um þessar mundir renna beint í vasa Bjarna.

En af hverju er Bjarni í sóttkví. Var hann á skíðum?

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Nei, ég var að syngja við óperuhúsið í Parma á Ítalíu. Við áttum að frumsýna um miðjan mars en viku áður lamaðist allt á þessu svæði og við söngvaranir rétt sluppum til okkar heimalanda áður en það gerðist. Það var skrítið að fylgjast með þessu gerast, svo að segja í nágvígi og eins og allir vita varð ástandið mjög snemma alveg hræðilegt. Þegar ég kom heim flutti konan út og ég fór í tveggja vikna sóttkví.

Hvernig hefur gengið í sóttkví? Er þetta eins og að endurlifa föstudaginn langa í hálfan mánuð?

Sóttkvíin hefur gengið mjög vel. Við sem störfum sem óperusöngvarar í lausamennsku erum vön að hafa ofan að fyrir okkur á milli æfinga og sýninga hér og þar um heiminn. Tilbreytingin núna var sú að maður var heima hjá sér, í sínu dóti og sínu rúmi. Það var góð tilbreyting. Dagarnir hafa liðið hratt enda hef ég haft ýmislegt fyrir stafni. Það er ekki sniðugt að leggjast bara í sjónvarpsgláp eða netnotkun, það verður leiðinlegt strax og dregur mann niður.

Dagbók í sóttkví. Af hverju?

Já, þetta var nú ekki planað. Eftir fyrsta daginn setti ég inn færslu á facebook og kallaði hana Dagur 1 í sóttkví. Svo hélt þetta bara áfram dag frá degi og lesendum fjölgaði og fjölgaði. Ég ákvað strax í byrjun að taka sjálfan mig ekki of hátíðlega og reyna að horfa á skondnar og skemmtilegar hliðar á ástandinu, sem auðvitað er ekkert grín. Á sama tíma er ég líka að leita mér að einhverju að gera því söngverkefnin mín eru öll að detta út og þar sem ég vinn nær eingöngu erlendis fell ég á milli þilja þegar kemur að aðstoð hins opinbera.

Hvaða vinnu fær miðaldra óperusöngvari sem er í sóttkví?

Það er auðvitað ekki um auðugan garð að gresja en þó hef ég farið í bæði hljóð- og myndprufur hér heima fyrir ýmis verkefni. Í einni færslunni var ég að grínast með það að gerast áhrifavaldur á netinu því auðvitað fell ég ekki alveg inn í þá skilgreiningu. En þá hafði fyrirtæki samband við mig sem selur sokka. Í framhaldi af því þá fórum við í samstarf; ég minnist á sokkana af og til í skrifum mínum svo framarlega sem mér líst á þá og í staðinn fæ ég hluta af allri sölu sem fer í gegnum heimasíðu fyrirtækisins. Síðan fékk ég nokkur sokkapör til að prófa og spássera um íbúðina alsæll á hverjum degi í nýjum og fallegum sokkum. Þetta kemur sér vel og hefur gefið mörgum sem lesa pistlana mína daglega og skemmta sér yfir þeim, tækifæri til að styrkja mig örlítið og eignast vandaða sokka í leiðinni.

Hvað tekur við eftir sóttkví?

Það á eftir að koma í ljós. Ég mun halda áfram með pistlana mína svo lengi sem mér dettur eitthvað skemmtilegt í hug og fólk nennir að lesa þá.


Við óskum Bjarna velfarnaðar í sóttkvínni og verkefnaleitinni. Pistlana hans er hægt að nálgast á facebókarsíðunni hans og þeir sem vilja styrka óperusöngvarann og pistlahöfundinn með sokkakaupum geta farið á síðuna www.socks2go.is

Nokkur brot úr dagbók Bjarna

Dagur 1:

…Það mætti svo sem halda útitónleika af svölunum. Ég fékk m.a.s. hljóðkerfi í jólagjöf og gæti því haldið uppi stemningu í öllu Akurhverfinu. Í versta falli myndu nágrannarnir borga mér fyrir að hætta…..

Dagur 2:

….Í gær var ég nokkuð duglegur en í dag var ég svo latur að ég nennti bara að borða. Af hverju virkar letin ekki á hungrið? Það væri mikil blessun. Vá, þú ert búinn að grennast svo mikið! Já ég nennti ekki að borða…. 

Dagur 6:

…Það er örugglega eitthvert tónskáld ákkúrat núna byrjað að semja óperu um Covid19; ég pant syngja Trump. Áður fyrr söng ég mikið af gamanhlutverkum fyrir bassa en það eru oft klaufalegir einfeldningar sem fá að lokum makleg málagjöld. Það væri líka auðvelt að læra hlutverk Trump því ef maður ruglast eitthvað eða segir einhverja bölvaða vitleysu þá er maður að komast ansi nálægt fyrirmyndinni….

Dagur 8:

…Hálfnað er verk þá hafið er segir máltækið. Já, einmitt. Það er greinilegt að máltækið hefur aldrei verið í sóttkví. Það hefur aldrei verið lokað inni vinalaust og þurft að takast á við félagsskapinn af sjálfu sér. Mikið nær væri að segja: Hálfnað er verk þá hálfnað er! Sóttkvíin mín er hálfnuð en það var samt ekki tekinn neinn hálfleikur; ég fékk ekki að fara af leikvelli og hitta fólk í korter og það sátu engir sérfræðingar í sjónvarpssettinu og ræddu um það hvernig ég hefði staðið mig. Já, þetta byrjaði vel hjá Bjarna en svo kom lélegi kaflinn……

Dagur 13:

…Heimurinn verður ekki sá sami eftir veiruna því fólk verður miklu meira heima hjá sér. Bankaútibú hverfa, bílum fækkar, skrifstofuhúsnæði verður óþarft, Alþingishúsinu verður breytt í safn þar sem hægt verður að prófa ræðustólinn og hækka eða lækka púltið að vild. Þar verður svona selfie-myndabox og gestir geta fengið mynd af sér með mismundandi forseta Alþingis fótósjoppaða inn í bakgrunni. Á eftir er hægt að fara á Klausturbarinn, sem verður líka safn og tala dónalega. Frá þeirri heimsókn fær maður hljóðupptöku. Já þetta verður breyttur heimur….

Hér má lesa viðtalið við Bjarna í rafrænni útgáfu Víkurfrétta.