Mannlíf

Galdrar á Bókasafni Reykjanesbæjar
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
fimmtudaginn 24. september 2020 kl. 10:34

Galdrar á Bókasafni Reykjanesbæjar

Í sumar opnaði sýningin „Galdraheimur bókmenntanna“ í Átthagastofu Bókasafnsins. Harry Potter varð fertugur 31. júlí og í tilefni þess hefur verið settur upp galdraheimur í Bókasafninu þar sem hægt er að skoða ýmsar galdraverur eins og drauga og húsálfa. Á sýningunni er stórt safn muna auk bóka sem tengjast galdraheiminum. Boðið er upp á sjálfspróf þar sem allir geta fundið út hvaða heimavist þeir tilheyra. Bókasafnið alla til að heilsa upp á myrka herrann Voldemort, Dumbledore skólameistara og fleiri volduga galdramenn ásamt því að taka myndir fyrir framan Hogwarts skólann.

Í Suðurnesjamagasíni Víkurfrétta sem verður sýnt á fimmtudagskvöld verður sýningin skoðuð og rætt við Guðnýju Kristínu Bjarnadóttur upplýsingafræðing á Bókasafni Reykjanesbæjar um verkefnið. Hún er á myndinni hér að ofan ásamt Önnu Maríu Cornette deildarstjóra sem kom að uppsetningu sýningarinnar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024