Mannlíf

Alveg hægt að draga úr þessari neysluspennu
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
sunnudaginn 10. maí 2020 kl. 13:56

Alveg hægt að draga úr þessari neysluspennu

Guðmundur Þórðarson býr í Svíþjóð í bænum Balsta fyrir norðan Stokkhólm. Guðmundur vinnur sem kerfisstjóri hjá fyrirtæki sem heitir Wallenberg Foundations og er staðsett í miðbæ Stokkhólms.

Hér má lesa viðtalið og sjá fleiri myndir í Víkurfréttum

„Við fluttum hingað öll fjölskyldan á sínum tíma, við hjónin og dætur okkar, Bríet og Marín. Bríet, eldri dóttir okkar, býr hér í Balsta líka með sænskum manni sínum og tveimur börnum. Marín býr í Sydney í Ástralíu með sínum manni og er í háskólanámi þar,“ segir Guðmundur þegar hann er spurður út í fjölskylduhagi.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

– Hvernig stóð á því að þú fluttir til útlanda?

„Að mestu leyti fluttum við vegna kreppunnar 2008 og vegna sífellds óstöðugleika sem á sér stað í íslensku efnahagslífi.“



– Var erfið ákvörðun að söðla um og flytja í annað land?

„Í sjálfu sér ekki svo erfið ákvörðun. Við fluttum út án þess að hafa vinnu en ég fékk vinnu mjög fljótt. Það tekur tíma að söðla um en það hjálpar mikið að Svíþjóð er að mörgu leyti lík Íslandi og flest virkar svipað.“

– Saknarðu einhvers frá Íslandi?

„Auðvitað saknar maður vina sinna, foreldra og systur sem eru enn á Íslandi.“

– Er eitthvað framandi sem hefur komið þér á óvart þar sem þú býrð núna?

„Eins og ég sagði þá er margt líkt með Íslandi og Svíþjóð þannig að það er fátt sem kemur manni á óvart hér. Matur, hefðir og fleira er mjög líkt“

– Hefurðu alltaf búið á sömu slóðum?

„Fyrstu sjö árin bjuggum við í Stokkhólmi en keyptum okkur hús í Balsta rétt fyrir norðan Stokkhólm fyrir þremur árum.“

– Hverjir eru helstu kostir þess að búa þar sem þú býrð?

„Stærsti kosturinn er að búa nálægt dóttur okkar og barnabörnum. Það er gott að hafa efnahagslegan stöðugleika. Veðrið, sumarið er töluvert lengra hér og hærri hiti. Stutt í að ferðast til Evrópu og töluvert ódýrara.“

– Hvernig er hefðbundinn dagur í lífi þínu?

„Það er nú bara að dröslast á lappir snemma, um hálf sjö og taka lestina til Stokkhólms í vinnuna. Ég vinn á skrifstofu í miðbæ Stokkhólms. Ég er yfirleitt komin heim um hálfsex. Á sumrin reyni ég að spila golf eftir vinnu, fara í gönguferðir, hringja í vini og þess háttar.“

– Líturðu björtum augum til sumarsins?

„Lít alltaf björtum augum til sumarsins.“

– Hver eru þín áhugamál og hefur ástandið haft áhrif á þau?

„Já, enginn fótbolti sýndur þannig að það hefur haft áhrif.“

– Áttu þér uppáhaldsstað á Íslandi og hver er ástæðan?

„Garðurinn og Garðskaginn er minn uppáhaldsstaður. Ólst mikið upp þar með frændum og vinum þar og á mikið af góðum minningum þaðan.“

– Hvað stefnirðu á að gera í sumar?

„Það verður nú frekar rólegt sumar held ég. Njóta veðursins, heimsækja vini, sóla sig á ströndinni og spila golf.“ Spurður hver plönin hafi verið áður en veiran setti strik í reikninginn, segir Guðmundur að plönin hafi verið þau sömu.

– Hvernig hefur COVID-19 verið að hafa áhrif þar sem þú býrð?

„Já, það eru töluverð áhrif hér í Svíþjóð. Þó Svíþjóð hafi ekki farið jafnlangt og Ísland í að loka fyrir hluti og stofnanir þá er allt meira og minna stopp hér.“ 

– Hvernig hefur tilveran verið hjá þér undanfarnar vikur, hefur margt breyst?

„Ástandið hefur haft töluverð áhrif. Ég hef unnið að mestu leyti heima síðustu vikur, lítið um að maður hitti fólk. Haldið sig að mestu heima við.“

– Hvaða lærdóm getum við dregið af heimsfaraldrinum?

„Það er alveg hægt að draga úr þessari neysluspennu sem hefur svo slæm áhrif á náttúruna þó höftum verði létt.“

– Hvaða aðferðir ertu að nýta til að eiga í samskiptum við fólk?

„Það eru sömu aðferðir við höfum notað síðan við fluttum, Skype og Messenger. Við höfum oft samband við vini. Sitjum stundum heilu kvöldin á „Vide chatti“.  Jafnvel borðað saman, grillað og þess háttar.“

– Ef þú fengir bara að hringja eitt símtal í dag, hver fengi það símtal og hvers vegna?

„Ég myndi hringja í hana Dóru ömmu frá Vörum sem lést 2009. Sakna hennar mikið og langar að segja henni hvað mér þykir vænt um alla hlutina sem við gerðum saman.“