„Töfrandi himinn Íslands“ heillaði áhorfendur á Ljósanótt
„Þetta var mjög áhrifarík sýning,“ heyrðist meðal áhorfenda eftir kvikmyndasýningu í Bókasafni Reykjanesbæjar á Ljósanótt.
Kvikmyndin „Töfrandi himinn Íslands“ er um 25 mínútur að lengd og er svokallað upplifunarverk þar sem saman fléttast kvikmynd, time-lapse-ljósmyndun og drónamyndir af íslenskri náttúru. Verkið gefur áhorfendum einstakt tækifæri til að upplifa íslenskt landslag og himinn í myndum og tónum. Verkið er eftir ljósmyndarann Jón Rúnar Hilmarsson og við það er flutt frumsamin tónlist eftir Alexöndru Chernyshovu. Tónlistin er flutt af höfundi hennar ásamt hljómsveit og óperukór í Kyiv og var hún tekin upp bæði í Úkraínu og á Íslandi.
Jón og Alexandra eru listahjón sem eru vel kunn á Suðurnesjum. Þau hafa bæði reglulega komið fram á Ljósanótt allt frá árinu 2005. Alexandra hefur komið fram sem óperusöngkona og tónskáld, meðal annars á tónleikum í Ytri-Njarðvíkurkirkju, í Duus Safnahúsi og á Stofutónleikum Alexöndru. Jón hefur haldið fjölmargar ljósmyndasýningar. Þau hafa bæði hlotið fjölmargar viðurkenningar fyrir list sína, bæði hér heima og erlendis.
Þetta er í fyrsta sinn sem þau koma saman á Ljósanótt með eitt sameiginlegt listaverk. „Það var ánægjulegt að sjá að heimafólk og ferðamenn létu sig hafa það að koma í Bókasafnið í bíó, þó að það sé aðeins út úr aðalflæðinu frá miðbæ Keflavíkur, þar sem allt er að gerast,“ segir Jón. „Ég er mjög þakklátur fyrir styrkinn frá Uppbyggingarsjóði, sem studdi við verkefnið og gerði okkur kleift að koma því í framkvæmd. Styrkurinn gerði okkur Alexöndru kleift að koma verkefninu í það form sem okkur langaði að sýna áhorfendum.“
Alexandra var einnig ánægð með sýninguna. „Það var mjög gaman að sýna kvikmyndina og fá endurgjöf frá áhorfendum strax á staðnum,“ segir Alexandra og brosir. „Það sem kom mér á óvart, og ég hafði ekki tekið eftir áður, var að verkið nær líka til mjög fjölbreyttra hópa, þar á meðal erlendra gesta. Náttúra Íslands er heillandi og einstök.“ Tónlistin í kvikmyndinni er Sinfonietta fyrir sópran, kór og hljómsveit og skiptist í fjóra kafla: Norðurljós, Vatn og stjörnur, Týnd og Töfrandi ást í himinum. „Það er gaman að upplifa að áhorfendur skynjuðu það sem við Jón vildum segja og endurspegla í verkinu,“ segir Alexandra.
Listaverk í gjöf
Það var einnig skemmtileg nýjung við sýninguna að í fyrsta sinn var dregið úr hópi áhorfenda í lok sýningarinnar og einn heppinn gestur hlaut glæsilega ljósmynd eftir mig á striga að gjöf. Það var Helga frá Hveragerði sem varð svo heppin að fá myndina.
„Ég held að við gerum þetta að hefð hjá okkur og gefum eitt listaverk frá okkur á Ljósanótt,“ segir Jón að lokum í tilkynningu.






