Karlakórinn
Karlakórinn

Fréttir

Viðsnúningur í rekstri Samkaupa
Framkvæmdastjórn Samkaupa.
Miðvikudagur 13. mars 2024 kl. 16:24

Viðsnúningur í rekstri Samkaupa

Samkaup hf. hafa samþykkt ársreikning fyrir rekstrarárið 2023 á aðalfundi félagsins þann 13. mars 2024. Niðurstöður endurspegla þá miklu vinnu sem stjórnendur hafa lagt í innri vinnu og aukin skilvirkni í rekstri. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Samkaup hagnaðist um 268 milljónir samanborið við 192 milljóna tap árið áður. Vörusala jókst á milli ára og nam rúmum 42,3 milljörðum, samanborið við rúma 40 milljarða árið áður. Þá var eigið fé í árslok 3.139 milljón króna, samanborið við 3.021 milljónir árið 2022 og eiginfjárhlutfall 17,2%.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Síðasta ár var krefjandi á dagvörumarkaði með miklum kostnaðarhækkunum. Fordæmalausar verðhækkanir birgja og framleiðenda, dýrir kjarasamningar og hátt vaxtastig og verðbólga. Dagvörumarkaðurinn dróst saman í upphafi árs en fór að rétta úr kúttnum yfir sumarið og hélt sú þróun áfram út árið. Innkaupsverð hækkaði mikið á árinu en alls bárust um 300 tilkynningar um verðhækkanir frá birgjum á árin sem hafði veruleg áhrif á framlegð. Laun hækkuðu mikið  á árinu. 

Samkaup reka meira en 60 verslanir víðsvegar um land undir merkjum Nettó, Kjörbúðarinnar, Krambúðarinnar og Iceland.

„Ef við drögum árið 2023 saman þá er mikil vinna og útsjónarsemi stjórnendateymis Samkaupa sem marka uppgjörið. Allir þjónustusamningar voru endurskoðaðir eða sagt upp, fækkað var í yfirstjórn og á skrifstofu, verslun lokað og opnunartími verslana endurskoðaður. Þrátt fyrir þennan mikla fókus á innri vinnu misstum við aldrei sjónar á því markmiði okkar að bjóða viðskiptavinum okkar gæðavörur á góðu og samkeppnishæfu verði. Má nefna að á síðasta ári lækkuðum við verð á Xtra vörumerkinu okkar til þess að koma til móts við viðskiptavini okkar og sporna gegn áhrifum verðbólgu á dagleg innkaup fólks. Þá nýttum við síðasta ár í að þróa appið okkar áfram en það veitir viðskiptavinum okkar 2% appslátt af allri verslun í öllum verslunum Samkaupa,“ segir Gunnar Egill Sigurðsson, forstjóri Samkaupa.

Helstu niðurstöður rekstrarársins 2023: 

  • Vörusala nam 42.340 m.kr., samanborið við 40.546 m.kr. á árinu 2022 
  • Framlegðarhlutfall nam 26%, samanborið við 24,8% á árinu 2021. 
  • Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) nam 2.693 m.kr., samanborið við 1.915 m.kr. á árinu 2022. 
  • Hagnaður eftir skatta nam 268 m.kr., samanborið við 192 m.kr. tap á árinu 2022. 
  • Heildareignir í árslok námu 18.259 m.kr., samanborið við 20.101 m.kr. á árinu 2022. 
  • Eigið fé í árslok nam 3.139 m.kr., samanborið við 3.021 m.kr. á árinu 2022. 
  • Eiginfjárhlutfall var 17,2%, samanborið við 15% á árinu 2022. 
  • Samfélagsskýrslu fyrir árið 2023 má finna hér: https://arsskyrsla2023.samkaup.is/