Tónlistarskóli RNB skólaslit
Tónlistarskóli RNB skólaslit

Fréttir

Fisk­tækni­skól­inn flyt­ur aftur til Grinda­vík­ur
Hópsskóli í Grindavík.
Föstudagur 29. maí 2026 kl. 10:15

Fisk­tækni­skól­inn flyt­ur aftur til Grinda­vík­ur

Fisktækniskóli Íslands mun á ný taka til starfa í Grindavík frá og með haustönn 2026 þegar skólinn flytur starfsemi sína í Hópsskóla í Grindavík.

Samkomulag hefur náðst um leigu á skólahúsnæði í eigu Grindavíkurbæjar eftir tvö ár í Suðurnesjabæ.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Fisktækniskólinn gegnir mikilvægu hlutverki í íslenskum sjávarútvegi og hefur verið nátengdur Grindavík frá upphafi. Flutningurinn markar því mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu bæjarins og styrkir um leið mennta- og atvinnulíf á svæðinu.

Fjölbreytt nám með sterka tengingu við atvinnulífið
Nýverið útskrifaði skólinn 45 nemendur og áfram verður boðið upp á fjölbreytt og hagnýtt nám á framhaldsskólastigi sem tengist sjávarútvegi. Námið byggir á tveggja ára grunnnámi þar sem skipt er á milli skólanáms og starfsnáms á vinnustöðum, meðal annars í sjómennsku, fiskvinnslu og fiskeldi.

Einnig verður áfram boðið upp á framhaldsnám í fiskeldi ásamt fjölbreyttum námskeiðum fyrir einstaklinga og fyrirtæki í sjávarútvegi og tengdum greinum.

„Flutningur Fisktækniskólans heim til Grindavíkur er jákvætt skref fyrir samfélagið allt og enn eitt merkið um aukna starfsemi og uppbyggingu í bænum,“ segir á vef Grindavíkurbæjar.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar