Blint í éljagangi á Suðurnesjum – ökumenn beðnir um að sýna aðgát
Veður og færð á Suðurnesjum eru krefjandi og víða getur verið blint í éljagangi, að því er fram kemur í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurnesjum. Lögreglan segir skyggni geta breyst mjög hratt og aðstæður á vegum tekið snöggum breytingum.
Ökumenn eru beðnir um að aka varlega og aðlaga hraða að aðstæðum, halda góðri fjarlægð á milli bíla og gera ráð fyrir lengri ferðatíma.
Gangandi vegfarendur eru einnig hvattir til að sýna aðgát, vera vel sýnilegir og hafa í huga að skyggni ökumanna geti verið takmarkað.
Lögreglan minnir á að fara varlega svo allir komist heilir heim.





