1. maí 2024
1. maí 2024

Fréttir

Baldur KE afhentur Byggðasafni Reykjanesbæjar til eignar
Sigrún Ásta Jónsdóttir forstöðumaður Byggðasafns Reykjanesbæjar og Ólafur Björnsson fyrir framan Baldur KE 97. VF-myndir/pket.
Sunnudagur 7. júní 2015 kl. 12:29

Baldur KE afhentur Byggðasafni Reykjanesbæjar til eignar

Vélbáturinn Baldur KE sem staðið hefur í nausti í Grófinni rétt við smábátahöfnina í Keflavík síðan árið 2003 var formlega afhentur Byggðasafni Reykjanesbæjar í lok sjómannamessu í Duus-húsum í morgun, á sjómannadegi.

Baldur KE á stóran sess í sjávarútvegssögu Keflavíkur en hann var á sjó í 42 ár og var mikið aflaskip, gerður lengst af út af Ólafi Björnssyni í útgerðarfélaginu Baldri. Ólafur sem er kominn á tíræðisaldurinn vildi að báturinn myndi áfram gegna hlutverki sínu í landi og fannst kominn tími til að gefa Byggðasafninu hann. Það var gert formlega við sjómannamessuna. Til stendur að stofna áhugafélag í kringum Baldur KE og að það muni t.d. aðstoða við viðhald hans og fleira í framtíðinni.
Mun stofnun þess verða auglýst í Víkurfréttum á næstunni.

Baldur KE 97 var fyrsti frambyggði báturinn samkvæmt íslenskum hugmyndum og fyrstur með skuttog á Íslandi. Ólafur segir að hann hafi snemma fengið þá flugu í hausinn að láta smíða frambyggðan bát með skuttog. „Ég var stýrimaður á togaranum Júní og Andrés Gunnarsson vélstjóri gerði líkan og tillögur að skuttogara, en á þessum tíma var nýsköpunin í gangi. Það vildi enginn hlusta á hann hér heima, en hann fór sem farþegi með okkur á Júní til Grimsby. Við gengum frá þessu listaverki á káetuborðinu og ég sat langtímum saman og horfði á þetta listaverk,“ sagði Ólafur í viðtali við Víkurfréttir árið 2003 þegar báturinn var fluttur á núverandi stað og upplýstur.

Báturinn var smíðaður í Svíþjóð og kom til Íslands 19. mars 1961 og þá þegar hóf hann veiðar. Baldur var með fyrstu bátunum sem hófu humarveiðar af einhverju marki og segir Ólafur að þær veiðar hafi gengið vel. „Við vorum á snurvoð á sumrin og á línu og netum á veturna. Okkur gekk báta best alla tíð á snurvoðinni.“
Baldur KE var síðustu árin í eigu Nesfisks í Garði en var lagt þann 1. mars 2003 eftir að hafa gegnt sínu hlutverki rækilega í 42 ár. Ólafur segir að það hafi verið draumur sinn að geta varðveitt Baldur. „Þegar það kom upp að þeir hjá Nesfiski voru tilbúnir að láta mig fá bátinn þegar þeir hættu að gera hann út þá fór ég og ræddi við bæjarstjórann og spurði hvort bærinn væri tilbúinn að búa honum stað. Bæjarstjóri tók því mjög vel og varð hrifinn af hugmyndinni.“

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Fjölmennt var í sjómannamessu sem haldin var í bíósal Duus-húsa.

Hér er Ólafur Björnsson með Borgari syni sínum, Kristjáni Gunnarssyni framkvæmdastjóra Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og Kristni Þormar formanni sjómannadeildar félagsins.