Karlakór Kef vortónl
Karlakór Kef vortónl

Fréttir

Áframhaldandi landris í Svartsengi
Þriðjudagur 6. maí 2025 kl. 14:43

Áframhaldandi landris í Svartsengi

Aflögunargögn (GPS) sýna skýr merki um áframhaldandi landris í Svartsengi en dregið hefur úr hraða þess undanfarnar vikur. Vísindamenn hafa lagt mat á hvenær líkur á nýju kvikuhlaupi eða eldgosi muni aukast. Í því mati er gert ráð fyrir að sama magn af kviku þurfi að safnast undir Svartsengi og í fyrri atburðum á Sundhnúksgígaröðinni. Miðað við að hraði landris sem mælst hefur síðustu vikur haldist óbreyttur má gera megi ráð fyrir að líkur á nýju kvikuhlaupi eða eldgosi fari að aukast þegar nálgast haustið. Ef hraði á landrisi og þar með kvikusöfnunar undir Svartsengi breytist hefur það áhrif á þetta mat. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Vísindamenn Veðurstofunnar vinna nú að endurskoðun á sviðsmyndum og leggja meðal annars mat á það hvort að áfram þurfi sama magn af kviku  safnast undir Svartsengi til  koma af stað nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Breytingar á hraða landriss metinn út frá þróun milli vikna en ekki daga

Aflögunargögn sem sýna landris sveiflast oft lítillega frá degi til dags, jafnvel þó undirliggjandi kvikuinnstreymi sé stöðugt. Þessar daglegu sveiflur geta orsakast af veðri, skekkjum í mælingum eða öðrum náttúrulegum þáttum sem hafa lítil áhrif á heildarmyndina. Ef aðeins er skoðað stutt tímabil í einu þá gæti það gefið ranga mynd af því hvort landris   aukast eða minnka. Því er mikilvægt  greina þróunina yfir viku eða lengra tímabil til   raunhæfa mynd af því sem er  gerast. Því er mikilvægt er  túlka þessi gögn með hliðsjón af þróun yfir lengri tímabil fremur en að túlka mælingar frá einstaka GPS-punktum á milli daga.

Jarðskjálftavirkni mælist áfram við kvikuganginn sem myndaðist 1. apríl en dregið hefur úr virkninni frá goslokum og hafa  meðaltali nokkrir tugir jarðskjálftar mælst á sólahring síðustu tvær vikur.

Hættumatskort hefur verið uppfært og gildir til 20.maí  öllu óbreyttu.  fréttauppfærsla er sömuleiðis fyrirhuguð þann 20. maí.

2025-05-06_haettumatskort_VI