Þorbjörn aðalfundir
Þorbjörn aðalfundir

Aðsent

Varðandi Akademíureitinn – tölum um staðreyndir
Föstudagur 24. apríl 2026 kl. 16:20

Varðandi Akademíureitinn – tölum um staðreyndir

Það er hefð fyrir því að frambjóðendur til sveitarstjórnarkosninga skrifi greinar um hin og þessi málefni tengd sveitarfélaginu. Oftar en ekki er verið að tala um framtíðarhugmyndir og áherslur, eða pólitískar keilur þar sem verið er að gagnrýna hin ýmsu mál. Það er alveg eðlilegt og viðbúið.

Það er þó á ábyrgð kjörinna fulltrúa að bregðast við þegar farið er fram með ýkjur eða hreinlega ósannindi. 

Aðalbros
Aðalbros
Akademíureiturinn

Þegar kemur að Akademíureitnum okkar, þá liggur svæðið milli Nettó í Krossmóa og að Reykjaneshöllinni. Þar er fyrirhuguð íbúabyggð í einum af miðbæjarkjörnum Reykjanesbæjar þar sem áherslan er lögð á fjölbreytta íbúðabyggð sem er mishá, með mikið uppbrot og fjölbreytt útlit, lita- og efnisval. Lögð er áhersla á litlar og meðalstórar íbúðir sem henta vel ungu fólki, einstaklingum og pörum.

Vinna við verkefnið hófst í byrjun árs 2024 þar sem stýrihópur skipaður kjörnum fulltrúum ásamt starfsfólki sveitarfélagsins hafa rýnt verkefnið síðan ásamt hönnuðum. Allt tal um að verið sé að flýta sér er allskostar ekki rétt. 

Það að þingmaður kjördæmisins treysti ekki bæjarstjórn Reykjanesbæjar til að taka ákvarðanir, verður að teljast ámælisvert. Að halda því fram að bæjarstjórn, kjörin af íbúum sveitarfélagsins, eigi að bíða með afgreiðslu verkefna vegna fyrirhugaðra kosninga er mjög sérstök. 

Þegar kemur að fullyrðingum um 200 íbúðir á svæðinu, þá er það heldur ekki rétt því gert er ráð fyrir um 120-150 íbúðum á svæðinu með nýtingarhlutfallið 0,6 sem má teljast hóflegt.

Búið er að kynna verkefnið fyrir íbúum og hagsmunaaðilum á þessum tveimur árum til að mynda með samráðs- og kynningarfundum í blöðum og á vefsíðu Reykjanesbæjar. Kynningar hafa verið í bæjarráði og bæjarstjórn og íbúum boðið að koma og skoða verkefnið til að koma skoðunum sínum á framfæri. 

Akademíureiturinn er á miðsvæði í aðalskipulagi sveitarfélagsins. Á miðsvæði er gert ráð fyrir fjölbýlum í stað sérbýla en aðrir reitir henta betur fyrir sérbýli eins og hverfið Keflavíkurborgir, Ásahverfi ásamt hluta af Ásbrú. Á þeim reitum geta risið yfir 200 einbýlishús á næstu árum samkvæmt húsnæðisáætlun og lausum lóðum á vef sveitarfélagsins.

Útfærsla bílastæða og vinna því tengdu fer af stað í deiliskipulagsvinnu síðar í ferlinu. Þó er gert ráð fyrir bílakjallara sem möguleika undir öllum reitunum ásamt bílastæðahúsi. Tillagan um lækkun hámarkshraða í hverfinu er ein af aðgerðum til að tryggja umferðaröryggi barna og ungmenna sem er nauðsynlegt vegna fjölda þeirra sem heimsækja Reykjaneshöll og Akademíuna til að iðka knattspyrnu og fimleika daglega.  

Afreksbrautareiturinn 

Það er gleðilegt að segja frá því að bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt tillögu stýrihóps Afreksbrautar um fyrsta fasa í uppbyggingu íþróttaaðstöðu til framtíðar. Fyrsti fasi verkefnisins snýr að uppbyggingu á fimleikahúsi og fimm æfingavöllum fyrir knattspyrnuna. Reykjanesbær mun byggja hjarta íþrótta bæjarins við Afreksbraut, vestan við Reykjaneshöll þar sem mun rýmra landsvæði er til staðar. 

Framtíðarsýn beggja reitanna hefur nefnilega verið í vinnslu undanfarin tvö ár af kjörtímabilinu og nú er komið að lokafasa undirbúnings fyrir framkvæmdir. Sá bolti er eðlilega hjá bæjarstjórn Reykjanesbæjar en ánægjulegt er að bæjarráð er sammála um framgang beggja verkefna. 

Hér má svo sjá rétta teikningu hönnuða af Akademíureitnum þar sem bílastæðaúrræði eru teiknuð upp. Vert er að nefna að þetta eru fyrstu hugmyndir en öll vinna við skipulag á reitnum tekur við í framhaldinu. Þá, eins og ávallt, verður tekið tillit til athugasemda sem kunna að berast.  

Við skulum tala um staðreyndir, ekki bara það sem hentar hverju sinni. 

Guðný Birna Guðmundsdóttir,
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir
og Helga María Finnbjörnsdóttir,
oddvitar meirihluta bæjarstjórnar í Reykjanesbæ.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir