BM Vallá 1-10 sept

Aðsent

Nýtt leikskólaráð – fagmennska og framtíð í forgrunni
Þriðjudagur 8. september 2026 kl. 09:05

Nýtt leikskólaráð – fagmennska og framtíð í forgrunni

Núverandi meirihluti bæjarstjórnar í Reykjanesbæ ákvað á þessu kjörtímabili að setja á laggirnar nýtt leikskólaráð. Ráðið er ný fastanefnd sveitarfélagsins og með stofnun þess er málefnum leikskólanna gefið aukið vægi og skapaður skýrari vettvangur fyrir samtal, stefnumótun og umbætur í leikskólamálum.

Með sérstöku leikskólaráði gefst jafnframt aukið svigrúm til að fylgja málefnum leikskólanna markvisst eftir, allt frá faglegu starfi og mönnun til stefnumótunar og framtíðaruppbyggingar.

Í stefnu Reykjanesbæjar er skýrt kveðið á um að börnin séu mikilvægust og sú hugsun er leiðarljós í starfi leikskólaráðs. Í Reykjanesbæ eru 1.066 börn í 12 leikskólum og starfsfólk þeirra vinnur á hverjum degi að því að skapa yngstu íbúunum okkar öruggt, þroskandi og hvetjandi umhverfi þar sem þau fá tækifæri til að vaxa og dafna.

Leikskólinn er fyrsta skólastigið og þar er lagður mikilvægur grunnur að þroska og áframhaldandi námi barna. Þar eflast meðal annars málþroski, félagsfærni og sjálfsmynd og þar felast mikil tækifæri til að stuðla að jöfnum tækifærum barna, óháð aðstæðum þeirra.

Fagfólkið er lykillinn að gæðum

Gæði leikskólastarfs byggjast fyrst og fremst á fólkinu sem þar starfar. Við eigum öflugt starfsfólk í leikskólum Reykjanesbæjar og viljum bæði hlúa að þeirri þekkingu og reynslu sem þegar er til staðar og vinna markvisst að því að fjölga fagmenntuðum leikskólakennurum.

Leikskólinn er lögbundið skólastig og menntastofnun og lög gera ráð fyrir að að lágmarki tveir þriðju hlutar stöðugilda við kennslu, umönnun og uppeldi barna í hverjum leikskóla teljist til stöðugilda kennara. Það er því ekki aðeins markmið eða metnaður að fjölga kennurum, sveitarfélögum ber að uppfylla þessa kröfu.

Menntun leikskólakennara veitir sérþekkingu á námi og þroska barna og styrkir hæfni til að meta þarfir barna og bregðast við þeim með markvissum hætti, þar á meðal þegar þörf er á auknum stuðningi. Fagmennska, stöðugleiki og fjölbreytt þekking starfsfólks eru lykilforsendur fyrir vellíðan, þroska og jöfnum tækifærum barna.

Ég trúi því að þau sem velja sér starf með börnum geri það vegna þess að þau vilja börnunum það besta. Okkar verkefni sem sveitarfélags er að skapa umhverfi þar sem gott starfsfólk fær stuðning, tækifæri til að efla þekkingu sína og raunhæfar leiðir til að sækja sér frekari menntun.

Þegar við ræðum uppbyggingu leikskólakerfisins þurfum við að horfa til fleiri þátta en fjölda leikskólaplássa. Tryggja þarf að samhliða uppbyggingunni sé til staðar nægileg fagleg þekking og mönnun til að standa undir því metnaðarfulla og góða leikskólastarfi sem við viljum bjóða börnunum okkar. Verkefni leikskólaráðsins er því meðal annars að spyrja: Hvernig höldum við í það góða starfsfólk sem við höfum? Hvernig sköpum við starfsumhverfi þar sem fólk vill starfa til framtíðar? Hvernig getum við stutt betur við starfsfólk sem vill efla þekkingu sína og mennta sig? Og hvað getum við gert til að fleiri velji sér leikskólakennslu að framtíðarstarfi?

Fyrsta verkefnið: Fjölga fagmenntuðum

Fyrsta verk ráðsins var að setja á laggirnar spretthóp sem byggir áfram á þeirri vinnu og þeim tillögum sem unnar voru af spretthópi á síðasta kjörtímabili um fjölgun leikskólakennara. Verkefni hópsins er að rýna hvaða leiðir séu raunhæfar og árangursríkar til að fjölga fagmenntuðum leikskólakennurum í Reykjanesbæ.

Við viljum skoða hvað sveitarfélagið getur sjálft gert til að laða fólk að náminu og starfinu, styðja starfsfólk sem vill sækja sér menntun og skapa starfsumhverfi þar sem fagfólk vill starfa til framtíðar.

Tillögurnar verða lagðar fyrir leikskólaráð á fundi þess 23. október og fara í kjölfarið inn í umræðu við fjárhagsáætlanagerð sveitarfélagsins. Markmiðið er að vinnan skili ekki aðeins góðum hugmyndum heldur raunhæfum aðgerðum sem hægt er að hrinda í framkvæmd.

Leikskólaráð vill heyra frá ykkur!

Leikskólaráð á að vera lifandi vettvangur fyrir leikskólasamfélagið í Reykjanesbæ. Við viljum að reynsla, þekking og sjónarmið þeirra sem standa leikskólastarfinu næst fái að heyrast og nýtist í umræðu og stefnumótun ráðsins.

Ég hvet því starfsfólk leikskóla og annað fagfólk, foreldra og forráðamenn, dagforeldra og aðra íbúa til að hafa samband við ráðið og koma á framfæri hugmyndum, ábendingum og tillögum. Við viljum heyra hvað gengur vel, hvar tækifærin liggja og hvað þið teljið að við getum gert betur. Hægt er að senda erindi og ábendingar á netfang formanns leikskólaráðs, [email protected].

Ég skora á þau sem eru að velta fyrir sér framtíðarnámi eða nýjum starfsvettvangi að kynna sér leikskólakennaranám. Í starfi leikskólakennara gefst tækifæri til að hafa jákvæð og varanleg áhrif á líf barna og leggja sitt af mörkum til þess að Reykjanesbær verði einn besti staður á landinu til að búa, starfa og ala upp börn.

Ásdís Ólafsdóttir,
formaður leikskólaráðs

Bílakjarninn
Bílakjarninn