Fréttir

Vinnuslys um borð í fiskiskipi
Þriðjudagur 23. janúar 2018 kl. 11:07

Vinnuslys um borð í fiskiskipi

Slys varð um borð í netabáti um helgina þegar skipverji klemmdist illa á hendi. Maðurinn var við vinnu sína að leggja línu þegar lúga lokaðist á hönd hans með þeim afleiðingum að þumalfingurinn klemmdist illa. Lögreglan á Suðurnesjum var kvödd á vettvang og var skipverjinn fluttur frá Sandgerðishöfn með sjúkrabifreið á Landspítalann í Fossvogi.
 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024