Fréttir

Verðmætasköpun í atvinnulífinu
Þriðjudagur 25. október 2016 kl. 14:11

Verðmætasköpun í atvinnulífinu

- haustfundur Heklunnar haldinn í Hljómahöll

Heklan, atvinnuþróunarfélag Suðurnesja mun standa fyrir hádegisfundi n.k. fimmtudag 27. október þar sem fjallað verður um verðmætasköpun í atvinnulífinu og skoðuð þau tækifæri sem búa á Suðurnesjum.

Að sögn Bjarkar Guðjónsdóttur verkefnastjóra Heklunnar hefur mikill viðsnúningur orðið á atvinnulífinu á Suðurnesjum á stuttum tíma. „Nú glímum við við það lúxusvandamál að hér vantar fólk í vinnu og þar á ferðaþjónustan stóran þátt en líkja má Flugstöð Leifs Eiríkssonar við stóriðju okkar Suðurnesjamanna“.

Að sögn Bjarkar er ferðaþjónustan kærkomin en þó dugi ekki að setja öll eggin í sömu körfuna og því verði atvinnumálin skoðuð í sinni víðustu mynd og fengið sjónarhorn fjölbreyttra fyrirlesara sem fjalla munu um efnið. Þeir eru Grímur Sæmundsen formaður Samtaka Ferðaþjónustunnar (SAF) og forstjóri Bláa Lónsins hf., Heiðar Guðjónsson hagfræðingur og formaður stjórnar Vodafone og varaformaður stjórnar HS veitna og dr. Anna Karlsdóttir sérfræðingur hjá Nordregio.

Ari Eldjárn uppistandari mun slá á létta strengi á fundinum en fundarstjóri er Berglind Kristinsdóttir framkvæmdastjóri Heklunnar og SSS.

Fundurinn verður haldinn í Bergi, Hljómahöll og er fundurinn öllum opinn. Skráning er hafin á heklan.is.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024