Fréttir

Ungmenni í hraðakstri
Föstudagur 9. mars 2018 kl. 10:00

Ungmenni í hraðakstri

Þrjátíu ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni. Sá sem hraðast ók mældist á 148 km hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Þar var á ferðinni ökumaður sem ekki hafði náð 18 ára aldri og gerði lögregla aðstandendum viðkomandi viðvart um brotið. Annar ökumaður sem einnig var undir 18 ára aldri var einnig kærður fyrir hraðakstur.
Þá mældust þrír ökumenn á 141 km hraða þar sem hámarkshraðinn er 90 km á klukkustund.

 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024