Fréttir

Þórólfur Halldórsson skipaður sýslumaður í Keflavík
Föstudagur 30. maí 2008 kl. 16:44

Þórólfur Halldórsson skipaður sýslumaður í Keflavík

Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra hefur skipað Þórólf Halldórsson, sýslumann á Patreksfirði, sem sýslumann í Keflavík frá og með 15. júlí 2008. Guðgeir Eyjólfsson, sem skipaður hefur verið sýslumaður í Kópavogi frá og með 1. júní 2008, hefur jafnframt verið settur til að gegna sýslumannsembættinu í Keflavík til 15. júlí þegar Þórólfur tekur við.
Átta umsóknir bárust um embættið. Auk Þórólfs sóttu eftirtaldir um:
Árni Haukur Björnsson, fulltrúi hjá sýslumanninum í Keflavík, Ásgeir Eiríksson, fulltrúi og staðgengill sýslumannsins í Keflavík, Brynjar Kvaran, skrifstofustjóri og staðgengill sýslumannsins í Kópavogi, Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögfræðingur í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, Halldór Frímannsson, sérfræðingur - lögmaður á fjármálasviði Reykjavíkurborgar, Úlfar Lúðvíksson, skrifstofustjóri og staðgengill sýslumannsins í Reykjavík og Þuríður Árnadóttir, deildarstjóri hjá sýslumanninum í Reykjavík.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024