Fréttir

Tekinn með kíló af hassi
Föstudagur 19. september 2014 kl. 17:24

Tekinn með kíló af hassi

Karlmaður um þrítugt hefur verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi eftir að hann var stöðvaður í Flugstöð Leifs Eiríkssonar með tæplega eitt kíló af hassi  í fórum sínum. Maðurinn var að koma frá Kaupmannahöfn á leið til Grænlands, þegar tollverðir stöðvuðu hann fyrr í mánuðinum. Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald og fór lögreglan á Suðurnesjum með rannsókn málsins. Maðurinn hefur nú hlotið dóm, eins og að ofan greinir.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024