Fréttir

Munir og myndir vekja athygli
Miðvikudagur 21. nóvember 2018 kl. 10:33

Munir og myndir vekja athygli

– á 40 ára sögusýningu Byggðasafns Reykjanesbæjar

Um þessar mundir eru 40 ár liðin frá stofnun Byggðasafns Reykjanesbæjar. Af því tilefni hefur verið opnuð sýning í Gryfjunni í Duus Safnahúsum. Sýningin er sett upp til að minnast þess að nú eru 40 ár liðin frá því að bæjarstjórnir Njarðvíkur og Keflavíkur ákváðu að setja sameiginlega á stofn byggðasafn.
 
Á sýningunni er farið yfir tildrög og sögu safnsins, en ekki síður er vakin athygli á mikilvægu starfi Byggðasafnsins í veröld og samfélagi sem breytist ört. Það fennir fljótt í sporin, en hlutverk Byggðasafnsins er að muna tímana tvenna, halda utan um söguna og fræða nútímann og komandi kynslóðir um fortíðina.
 
Reykjanesbær býr yfir sérstæðri sögu, þar sem einmitt má greina afar skörp skil á milli tveggja tíma; annars vegar höfum við fiskibæina sem byggðu allt sitt á fangbrögðum við hafið og hins vegar langa sögu varnarliðs sem nágranna innan girðingar og uppbyggingu alþjóðaflugvallar. Inn á þessa sögu er komið á sýningunni í Gryfjunni sem er sú fyrsta af þremur í tengslum við 40 ára afmælið en tvær aðrar sýningar verða á nýju ári í tilefni tímamótanna.
 
Meðfylgjandi myndir voru teknar við opnun sýningarinnar en sýningargestir sýndu munum og myndum á sýningunni mikinn áhuga. VF-myndir: Hilmar Bragi

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024