Fréttir

Með þrjú börn án öryggisbúnaðar í bíl
Mánudagur 30. apríl 2018 kl. 13:51

Með þrjú börn án öryggisbúnaðar í bíl

Það má segja að ýmsu hafi verið ábótavant hjá ökumanni sem lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af um helgina. Bifreiðin sem hann ók var ótryggð og í henni voru fimm farþegar en hún var einungis skráð fyrir fjóra. Þrjú börn voru í aftursætinu en þau voru ekki í barnabílstólum né með annan tilskilinn öryggisbúnað. Ökumaðurinn gat ekki framvísað ökuskírteini né sýnt fram á að hann væri yfir höfuð með ökuréttindi. Skráningarmerkin voru fjarlægð af bifreiðinni og atvikið tilkynnt til barnaverndarnefndar.


 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024