Fréttir

Með Edduverðlaunahafa í vinnuna
Fimmtudagur 26. mars 2015 kl. 10:05

Með Edduverðlaunahafa í vinnuna

– sjónvarpsþáttur á menningarlegum nótum í kvöld

Tólfti þátturinn af Sjónvarpi Víkurfrétta á þessu ári fer í loftið á sjónvarpsstöðinni ÍNN í kvöld kl. 21:30. Þátturinn er á menningarlegum nótum að þessu sinni en við förum víða til að fanga menninguna.

Í þætti kvöldsins fylgjum við Kristínu Júllu Kristjánsdóttur Edduverðlaunahafa í vinnuna. Við förum einnig á menningarviku í Grindavík, á æfingu fyrir hátíðartónleika Keflavíkurkirkju, skoðum krúttlega páskaunga í Myllubakkaskóla og heyrum í Jóhönnu Rut, sem fór með sigur af hólmi í söngkeppni Samfés á  dögunum.

Þátturinn á ÍNN er kl. 21:30 í kvöld. Hann verður jafnframt aðgengilegur í háskerpu hér á vf.is síðar í dag.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024