Fréttir

Lögreglan óskar eftir vitnum
Fimmtudagur 25. september 2003 kl. 15:37

Lögreglan óskar eftir vitnum

Í tengslum við banaslys sem varð á Reykjanesbraut í gær 24. september kl. 07:06 óskar lögreglan í Keflavík eftir að hafa tal af fólki sem kom að slysinu og hlúði að ökumanni annarrar bifreiðarinnar.  Þarna er um að ræða ljóshærða konu, mann og tvö börn í grænni Subaru Legacy bifreið. Þeir sem get veitt upplýsingar um málið er bent á að hringja í síma 420-2400.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024