Fréttir

Löggan saxar á áralangan hallarekstur
Ljósmynd: Marínó Már Magnússon
Miðvikudagur 2. september 2015 kl. 06:00

Löggan saxar á áralangan hallarekstur

– Hallinn í dag er 25,6 milljónir króna.

Embætti Lögreglustjórans á Suðurnesjum hefur verið með halla allt frá árinu 2001. Í lok árs 2008 var hann orðinn verulegur eða samtals 186,1 m.kr. Markmið embættisins var að greiða jafnt og þétt niður hallann og á sama tíma að leita til ráðuneytisins um að koma á móts við embættið með því að lækka eða jafnvel að fella niður hallann. Þetta kemur fram í ársskýrslu embættisins fyrir árið 2014.

Árin 2009 til og með árinu 2014 hefur rekstur embættisins ávallt verið innan fjárheimilda og verið greiddar niður rúmar 50 m.kr. Á lokafjárlögum ársins 2012 var framkvæmd sérstök aflétting rekstrarhalla frá fyrri árum og var embætti Lögreglustjórans á Suðurnesjum eitt þeirra sem uppfylltu neðangreind fjögur skilyrði: Uppsafnaður halli í árslok 2009 var yfir 100 m.kr. Tekið hefur verið á fjármálastjórn þannig að ekki hafi bætt í hallann. Halli í árslok 2012 er umfram 4% af fjárlagaveltu og að stofnun hefur ekki fengið framlag vegna hallareksturs í fjáraukalögum á tímabilinu.

Aflétt var 75% af þeim halla sem var í lok ársins 2012, 141 m.kr. sem er 105,7 m.kr.. Halli embættisins í lok árs 2012 var þá 35,3 m.kr. og er nú í lok árs 2014 kominn niður í 25,6 m.kr. Þar með er embættið komið undir 4% halla en það er það hlutfall sem heimilt er að flytja á milli ára.

Þessi niðurstaða kemur ekki af sjálfri sér, segir í skýrslunni. Samstillt átak starfsfólks embættisins í þessum efnum á hér stóran hlut að máli. Jafnframt er ljóst að starfsfólk innanríkisráðuneytisins hefur lagt þessu máli lið í þágu embættisins. Markmiðið er áfram að halda embættinu innan fjárheimilda og ná hallanum niður.

Rekstur ársins 2014 var innan fjárheimilda en skilað er kr. 5.465.053 upp í hallann sem nú er 25,6 milljónir króna.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024