Fréttir

Kjaradeilu Flóafélaganna vísað til ríkissáttasemjara
Samþykkt var einróma að vísa deilunni til ríkissáttasemjara. mynd/vsfk.is
Föstudagur 17. apríl 2015 kl. 11:55

Kjaradeilu Flóafélaganna vísað til ríkissáttasemjara

Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur, Efling – stéttarfélag og  Verkalýðsfélagið Hlíf sendu í dag tilkynningu til ríkissáttasemjara og Samtaka atvinnulífsins um að yfirstandandi kjaradeilu Flóafélaganna, Eflingar, Hlífar og VSFK hafi í dag verið vísað til ríkissáttasemjara.

Samningaviðræður hafa ekki skilað árangri og tók stóra samninganefnd Flóafélaganna þessa ákvörðun einróma á fundi nefndarinnar í gærkvöldi.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024