Fréttir

Kísilmálmverksmiðja United Silicon komin í gang
Helgi Þórhallsson, forstjóri United Silicon, Ragnheiður Elín Árnasdóttir, iðnaðar- og viðskiptaáðherra, Helgi Björn, yfirverkfræðingur United Silicon, og Mark Giese, sérfræðingur hjá Tenova Pyromet, sem sá um byggingu og uppsetningu á verksmiðjubúnaðinum,
Sunnudagur 13. nóvember 2016 kl. 18:24

Kísilmálmverksmiðja United Silicon komin í gang

Kísilmálmframleiðsla hjá United Silicon í Helguvík var gangsett í dag. Þetta er fyrsta kísilmálmverksmiðjan á Íslandi. Iðnaðar- og viðskiptaáðherra, Ragnheiður Elín Árnasdóttir, setti ljósbogaofn verksmiðjunnar, sem framleiðir kísilinn, af stað og var það vel við hæfi þar sem hún tók fyrstu skóflustunguna að verksmiðjunni í ágúst 2014.

Lokið var við fyrsta áfanga byggingu kísilmálmverskmiðju United Silicon í Helguvík í ágúst og hefur félagið verið að prófa framleiðslubúnaðinn og undirbúa gangsetningu kísilmálmframleiðslu síðustu tvo og hálfan mánuð. Aðal verksmiðjuhúsið er 38 metra hátt og um 5.000 fermetrar að stærð, en alls samanstendur verksmiðjan að sjö húsum.

Í ofnhúsinu er 32 megavatta ljósbogaofn, sem félagið hefur gefið nafnið Ísabella. Ofninn framleiðir kísilmálminn við 1900 gráðu hita við efnabreytingu af kvartsgrjóti. Í fyrsta áfanga verða framleidd 22.900 tonn í ofninum. United Silcion hefur fengið starfsleyfi fyrir alls fjórum ofnum og er verksmiðjan hönnuð með þessa stækkun í huga. Miðað við fjóra ofna verður framleiðslugetan um 90.000 tonn á ári og verður verksmiðjan þá stærsta kísilverksmiðja í heimi. Kostnaðurinn við fyrsta áfanga verksmiðjunnar var um 12 milljarðar króna en fullbyggð mun hún kosta um 40 milljarða króna.

,,Við erum mjög ánægð og stolt á þessum stóru tímamótum. Það er mjög góð tilfinning að verksmiðjan hefur verið sett í gang eftir gríðarlega mikinn undirbúning og byggingu fyrsta áfanga verskmiðjunnar. Þetta er stórt og umfangsmikið verkefni sem hefur á uppbyggingartíma skapað hátt í 300 störf og rúmlega 60 störf nú þegar verksmiðjan hefur starfsemi,” segir Helgi Björn, yfirverkfræðingur United Silicon, sem hefur starfað við undirbúning verkefnisins síðastliðin 10 ár.

,,Þetta hefur verið gríðarlega stórt verkefni og stærra en við höfðum reiknað með. Það hafa komið tímar þar sem þetta verið mjög strembið fyrir okkur og við höfum unnið alla daga-, kvöld og nætur síðastliðna mánuði en við núna erum komnir í mark og munum nú taka á móti fyrsta hrákísli sem framleiddur er á Íslandi. Ég vill þakka öllum starfsmönnum United Silicon fyrir að mikið og gott vinnuframlag síðustu mánuði til að ná þessum frábæra árangri að gangsetja verksmiðjuna," segir Helgi ennfremur.


 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024