Fréttir

Jónsmessuganga upp á Þorbjörn
Föstudagur 23. júní 2017 kl. 13:18

Jónsmessuganga upp á Þorbjörn

-Gunnar og Hebbi úr hljómsveitinni Skítamóral leika tónlist við varðeld á fjallinu

Jónsmessuganga Bláa Lónsins og Grindavíkurbæjar í Geopark verður laugardaginn 24. júní. Gangan hefst kl.20:00 og lagt verður af stað frá Sundlaug Grindavíkur.

Gengið verður uppá fjallið Þorbjörn þar sem varðeldur verður tendraður. Áætlað er að ferðin taki um tvær og hálfa klukkustund. þeir Gunnar og Hebbi úr hljómsveitinni Skítamóral leika tónlist við varðeld á fjallinu. Dagskráin endar í Bláa Lóninu þar sem þátttakendur geta notið Jónsmessunæturinnar í töfrandi umhverfi Bláa Lónsins.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Bláa Lónið er opið til 23:00 og geta gestir slakað á til 23:30. Enginn þátttökukostnaður er í gönguna og eru þátttakendur á eigin ábyrgð. Þeir sem vilja njóta Bláa Lónsins að göngu lokinni býðst aðgangur á sérverði, eða 4.500 krónur.

Göngustjóri er Arnar Már Ólafsson