Fréttir

Icelandair á lista hundrað bestu flugfélaga heims
Föstudagur 23. júní 2017 kl. 14:31

Icelandair á lista hundrað bestu flugfélaga heims

Flugfélagið Icelandair er í 82. sæti á árlegum lista yfir 100 bestu flugfélög heims, er fram kemur á vef Túrista. Listinn er tilkynntur á  World Travel Awards, sem oft eru kölluð óskarsverðlaun ferðaþjónustunnar og fram fóru í París í fyrradag, en hann byggir á einkunnagjöf flugfarþega um allan heim.

Icelandair er eina íslenska flugfélagið á listanum en í heildina voru 320 flugfélög skoðuð.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024