Fréttir

Hvernig alþjóðafjármálastofnanir geta aukið fjárfestingu í hreinni orku
Þriðjudagur 27. september 2016 kl. 06:00

Hvernig alþjóðafjármálastofnanir geta aukið fjárfestingu í hreinni orku

- Ný bók eftir Hilmar Þór Hilmarsson kemur út í New York í haust

Ný bók eftir Njarðvíkinginn Dr. Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor við Viðskipta- og raunvísindasvið Háskólans á Akureyri, kemur út í New York nú í haust. Bókin ber titilinn International Financial Institutions, Climate Change and the Urgency to Facilitate Clean Energy Investment in Developing and Emerging Market Economies.

Í bókinni fjallar Hilmar um hvernig alþjóðafjármálastofnanir (til dæmis Alþjóðabankinn og svæðabankar) geta stuðlað að aukinni fjárfestingu í hreinni orku í nýmarkaðs- og þróunarríkjum. Á næstu árum og áratugum mun eftirspurn eftir orku að öllum líkindum aukast mest í nýmarkaðs- og þróunarríkjum. Hreinar orkulindir eru einnig að mestu staðsettar í þessum löndum. Framkvæmdir við nýtingu á hreinum orkulindum, til dæmis jarvarma- og vatnsfallsvirkjanir eru fjármagnsfrekar og hafa langan endurgreiðslutíma. Áhætta í nýmarkaðs- og þróunarlöndum, þar á meðal stjórnmálaáhætta, er oft mikil og alþjóðafjármálastofnanir geta stuðlað að aukinni fjárfestingu í samvinnu við einkageirann og hið opinbera með lánveitingum og styrkjum, en enn frekar með tryggingum og ábyrgðum, sem þær hafa hingað til verið tregar að veita. Þrátt fyrir þá ógn sem steðjar að heimsbyggðinni í loftslagsmálum, og í orku- og umhverfismálum, hafa alþjóðafjármálastofnanir lítið fjárfest í hreinni orku enn sem komið er.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Í bókinni fjallar Hilmar um hvernig alþjóðafjármálastofnanir geta beitt sínum fjármálatækjum og margfaldað hlut sinn í verkefnum á sviði hreinnar orku á næstu árum og áratugum. Bókina skrifaði Hilmar að mestu leyti þegar hann var gestaprófessor við Cornell University í Bandaríkjunum haustið 2015.