Fréttir

Fundarlaun enn í boði fyrir tölvubúnað
Þriðjudagur 17. apríl 2018 kl. 16:22

Fundarlaun enn í boði fyrir tölvubúnað

Eigendur tölvubúnaðar sem stolið var úr gagnaveri á Suðurnesjum fyrr á árinu, heita áfram 6 milljónum íslenskra króna í fundarlaun til þess sem getur veitt áreiðanlegar upplýsingar um hvar búnaðinn er að finna.
Frestur til að koma ábendingum um búnaðinn hefur verið framlengdur um tvær vikur, eða til 2.maí 2018.
Þeir sem búa yfir upplýsingum um málið eru hvattir til að hafa samband við lögregluna á Suðurnesjum í síma: 8320253

Fundarlaunin verða greidd til þess sem lögreglyfirvöld staðfesta að hafi fyrstur komið á framfæri ábendingu um hvar búnaðinn er að finna. Gætt verður fyllsta trúnaðar við þá sem veita lögreglu upplýsingar um málið.
Lögfræðistofa sem fer með málið fyrir hönd eigenda búnaðarins sér um að annast greiðslu fundarlauna.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024