Fréttir

Féll af reiðhjóli og rotaðist
Mynd úr safni.
Miðvikudagur 14. nóvember 2012 kl. 15:11

Féll af reiðhjóli og rotaðist

Ung stúlka féll af reiðhjóli í Keflavík í fyrradag og rotaðist. Töluverð hálka var á götum bæjarins þegar óhappið varð. Lögregla og sjúkralið á Suðurnesjum voru kvödd á slysstað. Stúlkan var ekki með öryggishjálm þegar hún datt og var hún flutt með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.  Þar var ákveðið að flytja hana á Landspítalann vegna höfuðáverka sem hún hafði hlotið við fallið.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024