Fréttir

Farþegar með Vogastrætó yfir 7000 í ár?
Fimmtudagur 3. september 2015 kl. 15:36

Farþegar með Vogastrætó yfir 7000 í ár?

Árið 2011 var bryddað upp á þeirri nýung að koma á reglubundnum ferðum milli Voga og Reykjanesbrautar í tengslum við akstur SBK milli Keflavíkur og höfuðborgarsvæðisins. Sveitarfélagið Vogar er með 14 manna bíl við aksturinn.

„Þetta verkefni hefur heldur betur undið upp á sig og gengið vel. Íbúar í Vogum hafa nú raunhæfan valkost um samgöngumáta, og ljóst ef litið er á farþegafjöldann og þróun hans að margir nýta sér þennan kost,“ segir Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri í Vogum.


Farþegafjöldinn vex stöðugt eins og sjá má á stöplaritinu hér að ofan, einnig má bregða upp þessari töflu sem einnig talar sínu máli:




Ef þróunin það sem eftir lifir ársins 2015 verður í samræmi við aukningu fyrri ára má gera ráð fyrir að fjöldi farþega fari að nálgast 7.000. Það er góð nýting á 14 manna bíl, segir Ásgeir bæjarstjóri.

 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024