Fréttir

Einar Þór hlýtur nýsköpunarverðlaun Íslenska sjávarklasans
Fimmtudagur 22. september 2016 kl. 06:00

Einar Þór hlýtur nýsköpunarverðlaun Íslenska sjávarklasans

Grindvíkingurinn Einar Þór Lárusson hlýtur Nýsköpunarverðlaun Íslenska sjávarklasans sem afhent verða við opnun Sjávarútvegssýningarinnar 28. september næstkomandi. Frá þessu er greint af vef Íslenska sjávarklasans. Þar segir að Einar eigi langa og merka sögu í nýsköpun tengdri íslenskum matvælaiðnaði og sjávarútvegi.

Eftir hefðbundna skólagöngu hóf Einar störf hjá niðursuðuverksmiðjunni Ora og hóf síðan nám í niðursuðufræði við Norges Hermetikkfagskole í Stavangri í Noregi. Þaðan lá leiðin til Vardö í Norður-Noregi til náms í fisktækni við Statens fagskola for fiskeindustri. Einar starfaði sem niðursuðufræðingur í Noregi að námi loknu. Eftir 6 ára veru í Noregi sneri hann aftur til Íslands og tók við verksmiðjustjórastöðu hjá nýstofnaðri niðursuðuverksmiðju í Grindavík. Einar rak lagmetisverksmiðju fyrir Fiskanes og síðar Þorbjörn í 10 ár. Á þessum árum voru helstu framleiðsluvörurnar niðursoðin rækja, lifur, grásleppuhrognakavíar og majónessósur.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Frá síðustu aldamótum hefur Einar tekið þátt í fjöl mörgum verkefnum fyrir saltfiskiðnaðinn á Íslandi auk þess að koma að mótun Fisktækniskólans og Codlands í Grindavík. Síðustu 3 árin hefur Einar komið að stóru verkefni á vegum Haustaks á Reykjanesi. Það snýst um slógnýtingu og endurnýtingu á fiskisalti. Einar hefur liðsinnt fjölmörgum frumkvöðlum og fyrirtækjum við vöruþrón á Íslandi og erlendis. Innan Íslenska sjávarklasans eru mörg fyrirtæki og matarfrumkvöðlar sem hafa notið aðstoðar Einars við vöruþróun. Einar hefur verið ötull liðsmaður og forystumaður um meiri og betri nýtingu íslenskra auðlinda. Í dag starfar Einar hjá Ísam, ORA, Akraborg og Lýsi.