Leikfélag Keflavíkur
Leikfélag Keflavíkur

Fréttir

Álstigi fauk af bíl á Reykjanesbraut
Laugardagur 21. október 2017 kl. 10:21

Álstigi fauk af bíl á Reykjanesbraut

Óhapp varð í vikunni á Reykjanesbraut, bifreið var ekið út af henni og var ökumaður hennar fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja vegna bakverkja. Tildrög þessa voru þau að ökumanninum var orðið heitt meðan á akstri stóð og ákvað hann því að losa öryggisbeltið og fara úr peysunni. Við það missti hann stjórn á bifreiðinni með framangreindum afleiðingum.

Þá fauk álstigi af bifreið, einnig á Reykjanesbraut og hafnaði hann á tveimur bifreiðum. Þær skemmdust nokkuð þegar stiginn lenti á þeim.
Loks voru fáeinir ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur í vikunni. Sá sem hraðast ók mældist á 139 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund.
 

Public deli
Public deli