Fréttir

113 nemendur útskrifast af Háskólabrú Keilis á árinu
Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis, flutti hátíðarræðu.
Mánudagur 21. ágúst 2017 kl. 09:32

113 nemendur útskrifast af Háskólabrú Keilis á árinu

-Rúmlega 1.500 manns útskrifast frá upphafi

Keilir útskrifaði ellefu nemendur af Verk- og raunvísindadeild Háskólabrúar við hátíðlega athöfn á Ásbrú síðastliðinn föstudag. Með útskriftinni hefur Háskólabrú Keilis útskrifað alls 113 nemendur á þessu ári og samtals 1.534 nemendur á þeim tíu árum sem boðið hefur verið upp á námið.

Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis, flutti hátíðarræðu og Berglind Kristjánsdóttir, forstöðumaður Háskólabrúar, flutti ávarp. Í ræðu sinni lagði Hjálmar áherslu á gagnkvæma virðingu okkar fyrir ólíkri menningu, trúarbrögðum og þjóðfélagshópum, en án hennar væri menntun lítils virði. Þá flutti Thelma Rán Gylfadóttir ræðu útskriftarnema. Dúx var Anton Þór Ólafsson með 9,59 í meðaleinkunn. Fékk hann bók og lesbretti frá Keili sem viðurkenningu fyrir góðan námsárangur.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Boðið er upp á Háskólabrú í samstarfi við Háskóla Íslands og gildir námið til inntöku í allar deildir háskólans. Keilir hefur markað sér sérstöðu í að veita einstaklingsmiðaða þjónustu og stuðning við nemendur. Kennsluhættir miða við þarfir fullorðinna nemenda, miklar kröfur eru gerðar um sjálfstæði í vinnubrögðum og eru raunhæf verkefni lögð fyrir. Kannanir í Háskóla Íslands á gengi nýnema hafa sýnt að nemendur sem koma úr Háskólabrú Keilis eru meðal þeirra efstu yfir þá sem telja sig vel undirbúna fyrir háskólanám.