K Steinarsson 1-15.júní
K Steinarsson 1-15.júní

Viðskipti

Festa í viðræður við Gildi – Gæti orðið næst stærsti lífeyrissjóður landsins
Fimmtudagur 11. júní 2026 kl. 17:41

Festa í viðræður við Gildi – Gæti orðið næst stærsti lífeyrissjóður landsins

Stjórnir Festu lífeyrissjóðs og Gildis-lífeyrissjóðs hafa ákveðið að hefja viðræður um mögulega sameiningu sjóðanna. Í viðræðunum verður m.a. skoðað hvort sameining sé hagfelldur kostur fyrir sjóðfélaga beggja sjóða sem og hvort sameining geti skilað sér í aukinni stærðarhagkvæmni, bættri þjónustu og enn öflugri sjóði til framtíðar. Fyrir liggur að sjóðirnir eru líkir að eðli og uppbyggingu, meðal annars með mjög sambærilegt réttindakerfi og samþykktir.

Gangi sameiningin eftir yrði nýr sjóður sá næst stærsti á landinu með um 1.600 milljarða króna eignir miðað við stöðu sjóðanna í lok síðasta árs, segir í tilkynningu frá Stjórnum Festu lífeyrissjóðs og Gildis-lífeyrissjóðs

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar