Viðskipti

Air Canada flýgur frá Keflavík til Toronto og Montreal
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
föstudaginn 3. júní 2022 kl. 15:58

Air Canada flýgur frá Keflavík til Toronto og Montreal

Air Canada hóf í vikunni á ný sumarflug sitt milli Keflavíkurflugvallar annars vegar og Toronto og Montreal hins vegar. Flogið var til Montreal í gær og Toronto í morgun. Air Canada flug síðast til Íslands 2019. Flogið verður fjórum sinnum í viku til og frá Toronto og þrisvar sinnum í viku til og frá Montreal. Flogið verður milli þessara áfangastaða fram í byrjun október.

„Við bjóðum Air Canada innilega velkomið aftur til Keflavíkurflugvallar eftir tvö erfið farsóttarár,“ segir Grétar Már Garðarsson, forstöðumaður flugfélaga og leiðaþróunar hjá Isavia. „Air Canada er mikils metinn samstarfsaðili og við hlökkum til að sjá okkar mikilvæga samband halda áfram að þróast á komandi árum. Endurkoma Air Canada er skýrt merki þess að Ísland er spennandi og vinsæll áfangastaður.“

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

„Þetta eru mjög spennandi fréttir fyrir viðskiptavini okkar á Íslandi sem geta nú byrjað að skipuleggja sína næstu ferð til að enduruppgötva Kanada,“ segir Marc Sam, umsjónarmaður Íslandsflugs Air Canada. „Beint flug okkar frá Keflavík til Toronto og Montreal mun gera viðskiptavinum okkar á Íslandi kleift að komast beint til Kanada og þaðan áfram til áfangastaða í bæði Norður- og Suður-Ameríku. Við hlökkum til að bjóða viðskiptavini okkar velkomna um borð.“