Karlakórinn
Karlakórinn

Mannlíf

Jólin kvödd með þrettándagleði í Reykjanesbæ
Fimmtudagur 4. janúar 2024 kl. 12:48

Jólin kvödd með þrettándagleði í Reykjanesbæ

Að gömlum og góðum sið verða jólin í Reykjanesbæ kvödd með þrettándagleði laugardaginn 6. janúar 2024.

Hátíðin hefst kl. 17:00 með blysför frá Myllubakkaskóla þar sem gengið verður í fylgd álfakóngs, drottningar og hirðar þeirra að hátíðarsvæði við Hafnargötu 12. Foreldrar eru hvattir til að leyfa börnunum að taka virkan þátt í gleðinni með því að klæða sig upp í ýmis gervi, jafnvel púkagervi en einnig er skemmtilegt að mæta með luktir í blysförina til að lýsa upp gönguna.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Á hátíðarsvæðinu tekur sjálf Grýla gamla á móti hersingunni, álfar munu hefja upp raust sína og syngja þrettándasöngva og alls kyns kynjaverur verða á sveimi á svæðinu.

Þrettándabrennan verður á sínum stað við Ægisgötu og gestum verður boðið upp á heitt kakó til að ylja sér.

Loks mun Björgunarsveitin Suðurnes sem senda jólin í burtu með glæsilegri flugeldasýningu eins og hennar er von og vísa. Það eru Karlakór Keflavíkur, Kvennakór Suðurnesja, Leikfélag Keflavíkur, Skátafélagið Heiðabúar, Björgunarsveitin Suðurnes og lúðrasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar sem taka þátt í dagskránni og sjá til þess að jólin í Reykjanesbæ verða kvödd með glæsibrag.