Íþróttir

Minningarmót Ragnars Margeirssonar 2023
Miðvikudagur 11. janúar 2023 kl. 11:04

Minningarmót Ragnars Margeirssonar 2023

Hið árlega minningarmót um Keflvíkinginn Ragnar Margeirsson, sem lék m.a. með Keflavík, KR og Fram verður haldið í Reykjaneshöllinni laugardaginn 4. febrúar. Mótið er hefbundið knattspyrnumót eldri drengja með 6 leikmenn í liði á kvart velli.

Skipt verður í riðla eftir aldri þátttökuliða, n.tt. 30 ára+ og 50 ára+. Hefð hefur skapast fyrir því hjá vinum Ragga Margeirs að styrkja góð málefni tengd knattspyrnu með pening sem safnast af þáttöku í mótinu. Þetta verður í sautjánda sinn sem komið er saman til að minnast Ragnars Margeirssonar sem lést langt fyrir aldur fram. Vinir Ragga Margeirs bjóða öllum að koma við í Reykjaneshöllinni laugardaginn 4. febrúar og fylgjast með fyrrverandi knattspyrnusnillingum leika listir sínar og eiga góða stund saman.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Mótið hefst um kl. 15:30 og lýkur um kl. 18:00. - Leikið verður á 4 litlum völlum (50 x 32). - Leikmannafjöldi: 6 í liði (5 útileikmenn og markvörður) - Aldurstakmark er 30 ár - Hámarksfjöldi liða í mótið eru 16 lið - Þátttökugjald er að lágmarki 20.000 kr. á lið - Staðfestingargjald (5000 kr. - sem dregst frá þátttökugjaldi) skal greitt eigi síðar en 28. janúar - Þátttökugjald leggist inn á reikning: 0133-26-005194, kt. 701221-1250.

Þátttökutilkynningar sendist á [email protected].

Að móti loknu verður verðlaunaafhending ásamt því sem boðið verður upp á léttar veitingar á BRONS. Lokahófið hefst kl. 19 og lýkur formlega kl. 22 en fjörið heldur áfram fram á rauða nótt.

Þeir sem vilja styrkja málefnið geta gert það með því að leggja inná reikning nr. 0133-26-005194, kt. 701221-1250.

Með fótboltakveðju
Vinir Ragga Margeirs.