Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Íþróttir

Keflvískir taekwondo  keppendur á móti í Belgíu
Föstudagur 10. mars 2023 kl. 07:45

Keflvískir taekwondo keppendur á móti í Belgíu

Um helgina fór fram mótið Open Challenge Cup í taekwondo. Mótið var haldið í Tongeren í Belgíu og voru keppendur um eitt þúsund, flestir frá Evrópu. Á mótinu kepptu sautján keppendur frá Keflavík og fimmtán aðrir frá mismunandi félögum á höfuðborgarsvæðinu.

Á laugardeginum var keppt í poomsae (formum) og þar voru 12 keppendur frá Keflavík. Árangurinn þar var með ágætum. Magnús Máni Guðmundsson, Ragnar Zihan Liu og Snorri Páll Sigurbergsson unnu til bronsverðlauna í hópaformum. Aníta Rán Hertevig og Mikael Snær Pétursson unnu til bronsverðlauna í paratækni og Julia Marta Bator og Kacper Einar Kotowski unnu til silfurverðlauna í sama flokki í paratækni. Þá vann Kacper einnig til bronsverðlauna í einstaklingstækni og Jón Ágúst Jónsson sem keppti með Aþenu Rán úr Aftureldingu í paratækni, kom heim með bronsverðlaun úr þeim flokki eftir harða baráttu.

Public deli
Public deli

Á sunnudeginum var keppt í bardaga. Pakkfullt var í höllinni og mikill erill á þeim u.þ.b. 600 keppendum frá meira en 50 félögum víðsvegar um Evrópu. Þar unnu til gullverðlauna Jón Ágúst Jónsson, Ylfa Vár Jóhannsdóttir, Andri Sævar Arnarsson,  Þorsteinn Helgi Atlason og Lára Karítas Stefánsdóttir. Silfuverðlaun fengu Ragnar Ziahan Liu, Magnús Máni Guðmundsson og Kristján Pétur Ástþórsson. Bronsverðlaun fengu Viktor Berg Stefánsson og Daníel Arnar Ragnarsson.

Samtals fengu Keflvíkingar 5 gull, 4 silfur og 6 brons á mótinu. Þetta er fyrsta mótið eftir Covid sem stór hópur Keflvíkinga fer á taekwondo mót erlendis og góður fyrirboði fyrir næstu verkefni deildarinnar.