Íþróttir

Jón Arnór og Kamilla Sól í Njarðvík næstu tvö árin
Jón Arnór og Kamilla Sól við undirritun samninga. Milli þeirra er Kristín Örlygsdóttir, formaður körfuknattleiksdeildar UMFN. Mynd: umfn.is
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
miðvikudaginn 10. febrúar 2021 kl. 09:08

Jón Arnór og Kamilla Sól í Njarðvík næstu tvö árin

Bakverðirnir Jón Arnór Sverrisson og Kamilla Sól Viktorsdóttir hafa bæði undirritað nýja tveggja ára samninga við körfuknattleiksdeild Njarðvíkur.

Kamilla Sól bættist nýlega við leikmannahóp Njarðvíkur, hún lék með Njarðvík tímabilið 2018–2019 en hefur síðan þá verið á mála hjá Keflavík. Kamilla er sterkur bakvörður sem mun færa Njarðvíkurliðinu aukin gæði og liðsinna hópnum við að berjast fyrir sæti í Domino's-deild kvenna á nýjan leik.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Jón Arnór Sverrisson hefur farið mikinn á tímabilinu til þessa í Domino's-deild karla með 10,6 stig, 4,4 fráköst og 4,5 stoðsendingar að meðaltali í leik. Þá er hann þriðji hæstur á lista yfir stolna bolta, að meðaltali 2,29 í leik.